[Gandur] Fyrirlestur: Una Margrét Jónsdóttir og Söngvaleikir

Óli Gneisti Sóleyjarson oligneisti at gmail.com
Tue Feb 23 09:47:54 GMT 2010


Una Margrét Jónsdóttir er landsmönnum löngu kunn fyrir störf sín í
útvarpi en nú á síðasti ári gaf hún út bókina “Allir í leik:
Söngvaleikir barna”. Miðvikudaginn 24. febrúar klukkan 17:00 mun Una
flytja fyrirlestur á vegum Félags þjóðfræðinga á Íslandi á aðalsafni
Borgarbókasafnsins í Tryggvagötu.

Una Margrét hefur rannsakað íslenska leikjasöngva frá árinu 1999 og í
þessum fyrirlestri fjallar hún um þá - söngva á borð við "Fram fram
fylking" og "Bimm bamm bimm bamm" - og tengsl þeirra við sams konar
söngva erlendis.

Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

http://www.facebook.com/event.php?eid=326884600853


More information about the Gandur mailing list