[Gandur] Í H Á D E G I N U Á M O R G U N - Ek em íslenzkr maðr.“

Skrifstofa RA ra at akademia.is
Thu Feb 25 17:25:40 GMT 2010


ÍNOR og ReykjavíkurAkademían kynna:
>
> Fyrirlestraröð um ímyndir og sjálfsmyndir.
> Í samstarfi við Háskólann á Bifröst
>
> Þriðji fyrirlesturinn verður haldinn í ReykjavíkurAkademíunni,
> Hringbraut 121 frá kl. 12:00 -13:00 föstudaginn 26. febrúar í
> fyrirlestrarsal á 4. Hæð.
>
> Verkefnið er stutt af Reykjavíkurborg
>
> *„Ek em íslenzkr maðr.“
> Íslendingurinn í Íslendingasögum og viðtökum þeirra.
>
> Helga Kress
> *
> Fjallað verður um myndir og sjálfsmyndir Íslendingsins í
> bókmenntategundinni
> Íslendingasögur og tengt hugmyndum um karlmennsku, kynferði, tungumál (m.a.
> skáldskap) og þjóðerni.
>
> Út frá kenningum í ritinu Kulturgeschichte der
> Missverständnisse (ritstj. Henscheid, Henschel, Kronauer, Leipzig 2000)
> verður síðan
> fjallað um viðtökur og (rang)túlkun fræðimanna á 20. öld á mynd
> Íslendingsins í
> þessum textum, einkum hins svokallaða „Íslenzka skóla“ með útgáfu
> Íslenzkra
> fornrita ásamt þeirri ímyndasköpun sem þar á sér
> stað (og kemur m.a. fram í vali
> handrita, samræmdri stafsetningu fornri, formálum og neðanmálsgreinum) og
> hefur
> gengið aftur í viðteknum bókmenntasögum sem og íslenskri menningu fram á
> þennan
> dag.
>
> Helga Kress er bókmenntafræðingur og prófessor emeritus í bókmenntafræði
> við
> Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar eru einkum á sviði femínískra
> bókmenntafræða
> og íslenskrar bókmenntasögu að fornu og nýju og hefur hún gefið út fjölda
> rita um
> þau efni.
>  Vefsíða http://www.hi.is/~helga <http://www.hi.is/%7Ehelga>
>
> Jón Ólafsson stýrir fundi og umræðum.
>
> Allir velkomnir.
>
> --
> ReykjavíkurAkademían
>
> Hringbraut 121, 107 Reykjavík
> Sími/Phone: + 354 562 8561
> Fax: + 354 562 8528
> Netfang/email: ra at akademia.is
> Veffang/website: www.akademia.is
>
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100225/d8317df0/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list