[Gandur] „Ek em íslenzkr maðr.“

Skrifstofa RA ra at akademia.is
Mon Feb 22 11:00:32 GMT 2010


ÍNOR og ReykjavíkurAkademían kynna:

Fyrirlestraröð um ímyndir og sjálfsmyndir.
Í samstarfi við Háskólann á Bifröst

Þriðji fyrirlesturinn verður haldinn í ReykjavíkurAkademíunni,
Hringbraut 121 frá kl. 12:00 -13:00 föstudaginn 26. febrúar í
fyrirlestrarsal á 4. Hæð.

Verkefnið er stutt af Reykjavíkurborg

*„Ek em íslenzkr maðr.“
Íslendingurinn í Íslendingasögum og viðtökum þeirra.

Helga Kress
*
Fjallað verður um myndir og sjálfsmyndir Íslendingsins í bókmenntategundinni
Íslendingasögur og tengt hugmyndum um karlmennsku, kynferði, tungumál (m.a.
skáldskap) og þjóðerni.

Út frá kenningum í ritinu Kulturgeschichte der
Missverständnisse (ritstj. Henscheid, Henschel, Kronauer, Leipzig 2000)
verður síðan
fjallað um viðtökur og (rang)túlkun fræðimanna á 20. öld á mynd
Íslendingsins í
þessum textum, einkum hins svokallaða „Íslenzka skóla“ með útgáfu
Íslenzkra
fornrita ásamt þeirri ímyndasköpun sem þar á sér
stað (og kemur m.a. fram í vali
handrita, samræmdri stafsetningu fornri, formálum og neðanmálsgreinum) og
hefur
gengið aftur í viðteknum bókmenntasögum sem og íslenskri menningu fram á
þennan
dag.

Helga Kress er bókmenntafræðingur og prófessor emeritus í bókmenntafræði við
Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar eru einkum á sviði femínískra
bókmenntafræða
og íslenskrar bókmenntasögu að fornu og nýju og hefur hún gefið út fjölda
rita um
þau efni.
 Vefsíða http://www.hi.is/~helga <http://www.hi.is/%7Ehelga>

Jón Ólafsson stýrir fundi og umræðum.

Allir velkomnir.

-- 
ReykjavíkurAkademían

Hringbraut 121, 107 Reykjavík
Sími/Phone: + 354 562 8561
Fax: + 354 562 8528
Netfang/email: ra at akademia.is
Veffang/website: www.akademia.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100222/a9a98343/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list