[Gandur] Útsaumur og textíll í Þjóðminjasafni Íslands

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Thu Feb 18 11:18:53 GMT 2010


Útsaumur og textíll í Þjóðminjasafni Íslands
Þriðjudaginn 23. febrúar 2010 mun Lilja Árnadóttir fagstjóri munasafns 
Þjóðminjasafns Íslands veita leiðsögn um valin útsaumsverk úr 
Þjóðminjasafni á sýningu á þriðju hæð safnhússins við Suðurgötu. 
Leiðsögnin er hluti af hádegisfyrirlestraröð safnsins, en í vor verður 
fjallað um íslenska hannyrðahefð í fortíð og nútíð. Leiðsögnin hefst kl. 
12:05. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Á sýningunni er meðal annars refilsaumuð andlitsmynd, portrett, Þorláks 
Skúlasonar biskups á Hólum 1628-1656,  eftirgerð danskrar konu á 
altarisklæði frá Reykjahlíð í Mývatnssveit, sem varðveitt er í 
Þjóðminjasafni Dana, krosssaumuð rúmábreiða frá Bæ í Hrútafirði, hökull 
frá 17 öld með refilsaumuðum krossi og fleiri textílar sem veita innsýn í 
fagurt handverk frá fyrri tíð hér á landi. 
Í Þjóðminjasafninu eru varðveitt mikið af útsaumuðum verkum íslenskra 
kvenna frá ýmsum tímum.  Þeirra elst eru refilsaumuðu altarisklæðin frá 
miðöldum en mörg þeirra eru til sýnis í grunnsýningu safnsins en af 
varðveittum útsaumuðum verkum verður ekki annað ráðið en konur hér á landi 
hafi um aldir lagt sig fram um að sauma snilldarverk með margs konar spori 
og fjölbreytilegum munstrum.  Bæði er um að ræða hlutbundið myndefni úr 
Biblíunni en einnig stílfærð skraut, jurtavafninga og blómamunstur.
Með bestu kveðju,
Helga Vollertsen
Kynningarstjóri
Þjóðminjasafni Íslands
v/Suðurgötu
101 Reykjavík
s. 5302222/gsm 8242039
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100218/4b4cfe40/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 18028 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100218/4b4cfe40/attachment-0001.gif 


More information about the Gandur mailing list