[Gandur] ReykjavíkurAkademían og Reykjavíkurborg kynna - Stúdentastofu Reykjavíkur og Reykjavíkurstyrk Akademíunnar

Valdimar Tryggvi Hafstein vth at hi.is
Tue Aug 24 10:47:20 GMT 2010


ReykjavíkurAkademían og Reykjavíkurborg kynna -

*Stúdentastofu Reykjavíkur og Reykjavíkurstyrk Akademíunnar*


Aðstaða til verkefnavinnu og rannsóknarstyrkur

ReykjavíkurAkademían og Reykjavíkurborg auglýsa eftir umsóknum frá
háskólastúdentum í framhaldsnámi um vinnuaðstöðu án endurgjalds við
rannsóknarverkefni sem tengjast borginni og borgarfræðum almennt.

Vinnuaðstaðan er innan ReykjavíkurAkademíunnar við Hringbraut og er veitt
endurgjaldslaust til þriggja mánaða. Boðið er upp á aðstöðu fyrir allt að 6
háskólastúdenta og taka þeir þátt í starfsemi Akademíunnar á þeim tíma.

Jafnframt óska Reykjavíkurborg og ReykjavíkurAkademían eftir umsóknum um
rannsóknarstyrk að upphæð kr. 500.000 til rannsóknarverkefnis með hagnýtt
gildi fyrir Reykjavíkurborg. Rannsóknarstyrkurinn er veittur einum
háskólastúdent í Stúdentastofu Reykjavíkur og er þáttur í gildandi
samstarfssamningi ReykjavíkurAkademíunnar og Reykjavíkurborgar.


Samráðsnefnd á vegum Reykjavíkurborgar og ReykjavíkurAkademíunnar metur
umsóknirnar.

Vinsamlega sendið umsóknir um aðstöðu og rannsóknarstyrk með ferilskrá á
netfangið ra at akademia.is fyrir 15. september næstkomandi.


http://www.akademia.is/




More information about the Gandur mailing list