[Gandur] Textíll í víðum römmum og kynning á starfsemi Textílseturs Íslands

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Thu Apr 15 14:57:53 GMT 2010


Textíll í víðum römmum
og kynning á starfsemi Textílseturs Íslands

Þriðjudaginn 20. apríl mun Textílsetur Íslands í Kvennaskólanum á 
Blönduósi kynna starfsemi sína í hádegisfyrirlestri í Þjóðminjasafni 
Íslands. Í framhaldi mun Birna Kristjánsdóttir frá Háskólasetrinu á 
Blönduósi  flytja erindið „Textíll í víðum römmum.“ Fyrirlestrarnir eru 
hluti af hádegisfyrirlestraröð Þjóðminjasafns Íslands, en í vor hefur 
verið fjallað um íslenska hannyrðahefð í fortíð og nútíð. Dagskráin hefst 
kl. 12:05 og tekur um þrjú korter. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Titill erindisins ;,Textíll í víðum römmum“ er skírskotun til ferðalags, 
með það að markmiði að skoða textíl. Texti um textíl sem kallar fram 
fleiri spurningar en svör. Óljósar myndir textíltilveru  samtímans  eru 
dregnar upp, inn í ramma fagsviðs  án landamæra.  Birna sinnir rannsóknum 
í textíl við Háskólasetrið á Blönduósi og kennir við ferðamáladeild 
Háskólans á Hólum.

Með bestu kveðju, 
Helga Vollertsen 
Kynningarstjóri 
Þjóðminjasafni Íslands 
v/Suðurgötu 
101 Reykjavík 
s. 5302222/gsm 8242039
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100415/c4aa91a0/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 17586 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100415/c4aa91a0/attachment-0001.gif 


More information about the Gandur mailing list