[Gandur] Skoskættuð tónlistaruppákoma á vegum Þjóðfræðistofu

Kristinn H. M. Schram kristinn at akademia.is
Thu Apr 15 11:56:03 GMT 2010


Skoskættuð tónlistaruppákoma á Ströndum

Þjóðfræðistofa stendur fyrir skoskættaðri tónlistaruppákomu á Café
Riis á Hólmavík, þriðjudaginn 20. apríl kl. 20, þar sem leikið verður
á sekkjapípu og sagt frá þeim tónlistararfi sem tengist hljóðfærinu.
Sekkjapípan hefur um langt skeið verið danshljóðfæri geilískumælandi
manna í Skotlandi og meðal innflytjenda í Cape Breton og víðar.  Tiber
Falzett þjóðfræðingur frá Edinborgarháskóla hefur hljóðritað og
rannsakað þessa tónlistarhefð jafnt í segulbandasöfnum sem lifandi
flutningi. Tiber mun gefa hljóðdæmi og túlka ýmsar tegundir þessarar
tónlistar, svo sem jig, strathspey og reel, á endurgerðri átjandu
aldar sekkjapípu.

Hljóðfæraleikarar og áhugamenn um skoska eða írska tónlistarhefð eru
hvattir til að hafa með sér hljóðfærin.

Sjá heimasíðu Þjóðfræðistofu:  www.icef.is
Frekari upplýsingar í síma 8661940.


More information about the Gandur mailing list