[Gandur] Meistarafyrirlestur 15. apríl: Menningararfur sem ásetningur

Félag þjóðfræðinga á Íslandi thjodfraedingar at gmail.com
Mon Apr 12 11:16:09 GMT 2010


Fimmtudaginn 15. apríl kl:17:00 í stofu 201 í Árnagarði mun Bryndís
Björgvinsdóttir flytja fyrirlestur byggðan á meistararitgerð sinni en hún
fjallði um um notkun á menningararfi á Íslandi, en hluti heimilda var aflað
frá einstaklingum í Torfusamtökunum, þjóðbúningasaumakonum og konum sem koma
að Þorrablóti Bolvíkinga.

Umræður um menningararf hafa sótt í sig veðrið á undanförnum áratugum og nú
er svo komið að hann er nánast alls staðar. Sífellt fleiri hlutir, ummerki
og atferli eru skilgreind sem menningararfur hinna og þessa hópa - sem beri
að varðveita.  Jafnframt vísar fólk gjarnan til menningararfsins er það vill
styðja við mál sitt eða koma ákveðnum skilaboðum á framfæri.

Fyrirlesturinn fjallar einna helst um hvernig minnihlutahópar nýta sér
menningararf til að koma ákveðnum skilaboðum á framfæri til valdameiri hópa,
eða nýta sér hann beinlínis í baráttu um vald.

Þetta er þriðji og síðasti meistarafyrirlesturinn sem Félag þjóðfræðinga á
Íslandi stendur fyrir í samstarfi við Háskóla Íslands.

Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

-- 
___________________
Félag þjóðfræðinga á Íslandi
www.akademia.is/thjodfraedingar
thjodfraedingar at gmail.com
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100412/c33f742a/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list