[Gandur] Ráðstefna um Kirkjur Íslands

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Tue Sep 22 09:50:30 GMT 2009


Ráðstefna um Kirkjur Íslands
Í tilefni af útkomu tveggja nýrra binda af Kirkjum Íslands verður haldin 
ráðstefna í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands fimmtudaginn 24. 
september kl. 13:15-15:00. Flutt verða sjö stutt erindi. 

Þorsteinn Gunnarsson arkitekt lýsir markmiðum útgáfunnar og 
umfjöllunarefni, Jón Torfason skjalavörður segir frá heimildum um kirkjur 
og kirkjugripi á Þjóðskjalasafni Íslands, Björk Ingimundardóttir 
skjalavörður flytur óformlegt spjall um Borgarfjörð og Borgfirðinga, 
Sigríður Björk Jónsdóttir listfræðingur flytur erindi um kirkjur og 
kirkjusmiði í Borgarfjarðarprófastsdæmi, Lilja Árnadóttir, fagstjóri 
munasafns Þjóðminjasafns, flytur erindi um gripi og áhöld í kirkjum í 
Borgarfirði og á Mýrum, Guðrún Harðardóttir sagnfræðingur á Þjóðminjasafni 
Íslands segir frá Reykholtskirkju og áhrifum dómkirkjunnar í Reykjavík og 
Gunnar Bollason, verkefnisstjóri kirkjuminja hjá Fornleifavernd ríkisins, 
spjallar um borgfirsk minningarmörk. Ráðstefnustjóri er Margrét 
Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður. 

Kirkjur Íslands er grundvallarrit um friðaðar kirkjur á Íslandi ásamt 
gripum þeirra og minningarmörkum. Út eru komin 14 bindi en áætlað er að 
árið 2015, þegar útgáfunni lýkur, verði þau orðin 26. Útgefendur eru 
Húsafriðunarnefnd, Þjóðminjasafn Íslands og Biskupsstofa. Meðútgefandi og 
dreifingaraðili er Hið íslenska bókmenntafélag.

Með bestu kveðju,
Helga Vollertsen 
Kynningarstjóri
Þjóðminjasafni Íslands
v/Suðurgötu
101 Reykjavík
s. 5302222/gsm 8242039
helga.vollertsen at thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20090922/b2025ecd/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list