[Gandur] Garry "Morning Star" Raven

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Thu Sep 24 12:00:20 GMT 2009



Fyrirlestrar Garry “Morning Star” Raven

“The Medicine Wheel” 4. október

“The Sharing Circle” 5. október





Garry Raven er Ojibway frumbyggi frá Hollow Water, Manitoba í Kanada.  
Síðastliðin 25 ár hefur hann unnið við það kenna flest allt er  
viðkemur menningu frumbyggja. Megináhugamál hans er að kenna fólki að  
virða jörðina í gegnum hefðir og siði frumbyggja. Jurtalækningar eru  
einnig eitt af hans aðaláhugamálum. Garry Raven hefur haldið  
fyrirlestra víðsvegar í Kanada, Bandaríkjunum, Perú, Mexíkó og  
Rússlandi.

Fyrri fyrirlesturinn: Medicine Wheel - Lækningahjólið
           SÁA salnum í Efstaleiti 7, sunnudaginn 4. október kl 13:30
Þar mun Garry Raven fjalla um “The Medicine Wheel” eða lækningahjólið  
sem er aldar gamalt verkfæri sem frumbyggjar nota mikið við kennslu á  
menningu sinni og siðum. Lækningahjólið er víðtækt greiningartæki,  
t.d. við kennslu jurtalækninga eða samfélagslega ábyrgð okkar gagnvart  
hvort öðru, samfélaginu, landi og þjóð.

Seinni fyrirlesturinn: Sharing Circle - Trúnaðarhringur
           Norræna húsinu, mánudaginn 5. október  kl 17:30.
Í þessum fyrirlestri mun Garry Raven fjalla um “Sharing circle” eða  
trúnaðar hringinn. Það er aðferð sem frumbyggjar hafa notað lengi við  
lausn á hinum ýmsu vandamálum sem geta komið upp á milli einstaklinga,  
á vinnustöðum, innan stofnanna, fyrirtækja og félagasamtaka.

Allir eru velkomnir, aðgangseyrir er 1.500 kr. á hvorn fyrirlestur
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20090924/49af6606/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list