[Gandur] Þjóðháttasöfnun um áheit og trú tengd kirkjum

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Mon Sep 14 13:01:51 GMT 2009


Þjóðháttasöfnun um áheit og trú tengd kirkjum 
Þjóðminjasafn Íslands vinnur um þessar mundir að söfnun heimilda um áheit 
og trú tengd kirkjum. Söfnunin er samvinnuverkefni við námsbraut í 
þjóðfræði við Háskóla Íslands og Margaret Jean Cormack trúarbragðafræðing. 
Af þessu tilefni hefur verið tekin saman spurningaskrá sem send verður út 
á næstunni. Ekki hefur áður verið safnað sérstaklega upplýsingum um þetta 
efni. 

Strandakirkja.
Áheit voru mjög algeng í kaþólskum sið hér á landi og hafa einnig þekkst í 
töluverðum mæli á síðari öldum. Mikið hefur verið heitið á kirkjur og er 
Strandarkirkja þeirra langþekktust í dag. Helstu áheitastaðir fyrr á tímum 
voru Kaldaðarnes og Skálholt. Þar að auki var eða er heitið á helga menn, 
ákveðnar persónur, góð málefni og fleira. Þá tengdist trú af ýmsu tagi 
sjálfum kirkjuhúsunum. Sumum þeirra mátti t.d. ekki læsa og aðrar voru 
látnar standa opnar í verndarskyni.

Þjóðminjasafnið hefur áhuga á að ná til fólks sem býr yfir upplýsingum um 
áheit og trú tengd kirkjum og er það beðið um að hafa samband við safnið í 
síma 530 2200 eða að senda tölvupóst á netfangið agust at thjodminjasafn.is. 
Þjóðminjasafnið vill hvetja menn til að leggja söfnuninni lið og varðveita 
þannig mikilvæga þekkingu sem annars er hætt við að færi forgörðum. Með 
spurningaskránni er leitast við að ná til sem breiðasts hóps í öllum 
landshlutum, jafnt karla sem kvenna. Ennfremur er unnt að sækja 
spurningaskrána á vef Þjóðminjasafnsins http://www.thjodminjasafn.is og 
senda svör í tölvupósti. 

Þjóðminjasafn Íslands hefur í um hálfa öld safnað heimildum um þjóðhætti 
með spurningaskrám. Spurt hefur verið um lífshætti, siði og venjur fyrr á 
tímum en í seinni tíð hefur söfnunin einnig beinst að samtímanum. Svör 
heimildarmanna eru varðveitt í skjalasafni stofnunarinnar og slegin inn í 
stafrænan gagnagrunn. Aðgangur að grunninum er þó takmarkaður og háður 
sérstöku leyfi. 
Með bestu kveðju,
Helga Vollertsen 
Kynningarstjóri
Þjóðminjasafni Íslands
v/Suðurgötu
101 Reykjavík
s. 5302222/gsm 8242039
helga.vollertsen at thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20090914/dff7967e/attachment.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 12137 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20090914/dff7967e/attachment.gif 


More information about the Gandur mailing list