[Gandur] Viðskiptavæðing menningarlífsins og menningarvæðing viðskiptalífsins

Gisli Sigurdsson gislisi at hi.is
Mon Oct 12 10:17:55 GMT 2009


Viðskiptavæðing menningarlífsins og menningarvæðing viðskiptalífsins

Í kvöld, mánudaginn 12. október, kl. 20 flytur Loftur Atli Eiríksson,  
MA í menningarstjórnun, fyrirlestur í Reykjavíkurakademíunni,  
Hringbraut 121 Reykjavík. Loftur Atli kallar fyrirlesturinn:  
Viðskiptavæðing menningarlífsins og menningarvæðing viðskiptalífsins:  
Áhrif stefnu íslenskra stórfyrirtækja í styrkveitingum til  
menningarmála á menningarstofnanir á árunum 2002 til 2008, og er hann  
byggður á samnefndu rannsóknarverkefni til meistaragráðu frá  
Háskólanum á Bifröst.

Loftur Atli segir hvatann að rannsókninni hafa verið áður óþekktan  
áhuga einkaaðila og stórfyrirtækja á að styrkja menningar- og  
listastarfsemi eins og hann birtist í fjölmiðlum á árunum 2002-2008.  
Tilgangurinn með rannsókninni var að varpa ljósi á hvernig, félagsleg,  
pólitísk og fjárhagsleg tengsl stórfyrirtækja og menningarstofnana  
þróuðust á árunum 2002 til 2008 og hvaða ávinning og áhrif samböndin  
höfðu á menningarstofnanir og stórfyrirtæki.

Í niðurstöðum rannsóknarinnar koma fram greinileg hugmyndafræðileg  
tengsl á milli aðkomu einkafjármagns að menningarstarfsemi í Bretlandi  
og Bandaríkjunum og þeirrar stefnu sem tekin var upp á Íslandi. Það  
markverðasta sem rannsóknin leiddi í ljós að mati höfundar er að hún  
sýnir með skýrum hætti áhrif þess að stjórnvöld hvöttu  
menningarstofnanir til að gegna hlutverki almannatengla fyrir  
stórfyrirtæki til að byggja upp velvild, virðingu og traust í þeirra  
garð. Þetta telur Loftur Atli vera eina forsendu þess hversu  
stórfyrirtækin og útrásarvíkingarnir náðu langt í félagsmótun sinni og  
hversu gagnrýnin í þeirra garð var hjáróma. Dæmi um hversu samsömun  
stórfyrirtækja við menningu þjóðarinnar var fullkomin var þegar hinn  
grandvari fyrrverandi forseti Íslands, Vigdís Finnbogadóttir lánaði  
heimili sitt og fatnað í auglýsingu fyrir Landsbankann, auk þess sem  
barnabarn hennar lék í auglýsingunni, og engum þótti ástæða til að  
gera við það athugasemdir.

„Það kom mér á óvart hversu vel ígrunduð markaðsstefna  
stórfyrirtækjanna er varðandi menningarstarfsemi og á hversu  
árangursríkan hátt þeim tókst að nýta hana sér til framdráttar í nafni  
svokallaðrar samfélagslegrar ábyrgðar. Þá vakti það undrun mína hvað  
sértekjur menningarstofnana vegna samstarfs þeirra við stórfyrirtæki  
eru í raun litlar miðað við umfjöllun um samstarfið í fjölmiðlum og  
það almannatengslastarf sem þær vinna fyrir stórfyrirtækin.,“ segir  
Loftur Atli. „Loks vekur það athygli að notkun stórfyrirtækja á  
virðingu og trausti rótgróinna menningarstofnana í opinberri eigu til  
félagsmótunar og ímyndaruppbyggingar tíðkast nánast gagnrýnislaust  
hérlendis. Vonast ég til að rannsókn þessi eigi eftir að eiga hlut í  
að gera sambönd menningarstofnana og stórfyrirtækja gagnsærri og vera  
innlegg í umræðu um hvernig þeim verður best fyrir komið í framtíðinni.“

Ritgerðina sem fyrirlesturinn byggir á má lesa á skemman.is. á slóðinnihttp://skemman.is/bitstream/1946/3629/1/loftur_lokautgafa_fixed.pdf

Aðgangur að fyrirlestrinum er ókeypis en að honum loknum mun Njörður  
Sigurjónsson, lektor við Háskólann á Bifröst, stýra umræðum.


More information about the Gandur mailing list