[Gandur] Landnám Íslands í ReykjavíkurAkademíunni í dag kl. 16!!

Skrifstofa RA ra at akademia.is
Thu Nov 26 09:46:00 GMT 2009


*Landnám Íslands: Leitin að sannleikanum.*

*Um hvað er samstaða?
*

* Hvar liggur ágreiningur?
*

*Hvernig má leysa hann?*

*ReykjavíkurAkademían efnir til síðdegisumræðu í dag, fimmtudaginn 26.
nóvember 2009 kl. 16-18.*

Lengi hefur staðið styrr um kenningar sem verulega hafa hróflað við
viðteknum hugmyndum um upphaf landnáms á Íslandi. Þessar kenningar hafa
verið settar fram á grunni aldursgreiningar á kolefni, svokallaðrar C14
aðferðar. Nýlega birtist grein í Skírni eftir Pál Theódórsson eðlisfræðing
þar sem hann heldur þessum hugmyndum á lofti og vakti hún nokkra athygli
fjölmiðla og andmæli fræðimanna.

Kenningar um landnám Íslands, upphaf þess og framvindu byggjast á samleik
margra fræðigreina. Enn virðist þó ekki vera almenn samstaða um hvernig nota
beri C14 aðferðina í þessu samhengi.

Því blæs ReykjavíkurAkademían til umræðufundar um efnið í von um að bregða
megi ljósi á vandann og leita leiða til að stilla saman krafta ólíkra
fræðigreina.


 Páll Theódórsson eðlisfræðingur heldur erindi um kenningar sínar.


 Eftirtaldir bregðast stuttlega við erindi hans:

Árný Sveinbjörnsdóttir jarðfræðingur

Kristján Mímisson fornleifafræðingur

Viðar Pálsson sagnfræðingur

Þorsteinn Vilhjálmsson eðlisfræðingur og vísindasagnfræðingur.

 Eftir kaffihlé sitja frummælendur í pallborði og er vonast eftir líflegum
og málefnalegum umæðum með þátttöku gesta.
*

*--
ReykjavíkurAkademían

Hringbraut 121, 107 Reykjavík
Sími/Phone: + 354 562 8561
Fax: + 354 562 8528
Netfang/email: ra at akademia.is
Veffang/website: www.akademia.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20091126/e654ca10/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list