[Gandur] Landnám Íslands: Leitin að sannleikanum - Fréttatilkynning

Skrifstofa RA ra at akademia.is
Tue Nov 24 14:03:59 GMT 2009


*Landnám Íslands: Leitin að sannleikanum.*
>
> *Um hvað er samstaða?
> *
>
> * Hvar liggur ágreiningur?
> *
>
> *Hvernig má leysa hann?*
>
> *ReykjavíkurAkademían efnir til síðdegisumræðu fimmtudaginn 26. nóvember
> 2009 kl. 16-18.*
>
> Lengi hefur staðið styrr um kenningar sem verulega hafa hróflað við
> viðteknum hugmyndum um upphaf landnáms á Íslandi. Þessar kenningar hafa
> verið settar fram á grunni aldursgreiningar á kolefni, svokallaðrar C14
> aðferðar. Nýlega birtist grein í Skírni eftir Pál Theódórsson eðlisfræðing
> þar sem hann heldur þessum hugmyndum á lofti og vakti hún nokkra athygli
> fjölmiðla og andmæli fræðimanna.
>
> Kenningar um landnám Íslands, upphaf þess og framvindu byggjast á samleik
> margra fræðigreina. Enn virðist þó ekki vera almenn samstaða um hvernig nota
> beri C14 aðferðina í þessu samhengi.
>
> Því blæs ReykjavíkurAkademían til umræðufundar um efnið í von um að bregða
> megi ljósi á vandann og leita leiða til að stilla saman krafta ólíkra
> fræðigreina.
>
>
>  Páll Theódórsson eðlisfræðingur heldur erindi um kenningar sínar.
>
>
>  Eftirtaldir bregðast stuttlega við erindi hans:
>
> Árný Sveinbjörnsdóttir jarðfræðingur
>
> Kristján Mímisson fornleifafræðingur
>
> Viðar Pálsson sagnfræðingur
>
> Þorsteinn Vilhjálmsson eðlisfræðingur og vísindasagnfræðingur.
>
>  Eftir kaffihlé sitja frummælendur í pallborði og er vonast eftir líflegum
> og málefnalegum umæðum með þátttöku gesta.
>
>
> --
> ReykjavíkurAkademían
>
> Hringbraut 121, 107 Reykjavík
> Sími/Phone: + 354 562 8561
> Fax: + 354 562 8528
> Netfang/email: ra at akademia.is
> Veffang/website: www.akademia.is
>
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20091124/49278018/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list