[Gandur] Boðskort á sýningaropnun

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Tue Nov 24 15:24:33 GMT 2009


Kæri viðtakandi, 
Í tilefni af opnun sýningarinnar Ása Wright – frá Íslandi til Trinidad 
býður Þjóðminjasafn Íslands  og Forlagið þér til móttöku laugardaginn 28. 
nóvember 2009 kl. 15 í forsal á 2. hæð safnsins. 
Á sýningunni getur að líta hluta þeirra gripa sem Ása gaf safninu á 7. 
áratug síðustu aldar. Margir gripanna hafa ekki verið sýndir áður. 
Af sama tilefni verður nýútkominni ævisögu Ásu einnig fagnað en Inga Dóra 
Björnsdóttir mannfræðingur hefur ritað bókina Kona þriggja eyja um ævi Ásu 
og kom hún út hjá Forlaginu nýlega. Inga Dóra mun segja frá aðdragandanum 
að gjöf Ásu til Þjóðminjasafnsins og kynna bók sína.
Með bestu kveðju,
Helga Vollertsen
Kynningarstjóri
Þjóðminjasafni Íslands
v/Suðurgötu
101 Reykjavík
s. 5302222/gsm 8242039
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20091124/4171031f/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list