[Gandur] Fræðimenn í flæðarmáli: 10 ára afmælisrit ReykjavíkurAkademíunnar

Skrifstofa RA ra at akademia.is
Fri Nov 20 15:13:47 GMT 2009


Til vina og velunnara ReykjavíkurAkademíunnar:

Sértilboð á merkilegri bók:

*Fræðimenn í flæðarmáli: Saga ReykjavíkurAkademíunnar*, eftir dr. Árna
Daníel Júlíusson sagnfræðing. Bókin er *115 blaðsíður í allstóru broti,
prýdd fjölda mynda og litprentuð.*

Þar er tilurð, saga og starfsemi ReykjavíkurAkademíunnar rakin og sett í
vítt mennta- og menningarsögulegt samhengi. ReykjavíkurAkademían var nýtt og
gagnrýnið afl á akademískum vettvangi og bjó sjálfstætt starfandi
fræðimönnum starfsumhverfi sem auðveldaði þeim að láta til sín taka. Hún
krafðist þess líka að kraftar vel menntaðra fræðimanna í hug- og
félagsvísindum yrðu nýttir betur.

ReykjavíkurAkademían mótaðist á tímabili sem einkenndist af leyndum og
ljósum fjandskap í garð gagnrýninna hug- og félagsvísinda. Í bókinni er
meðal annars sýnt fram á hvernig stjórnvöld byggðu upp alvarlega slagsíðu í
íslensku háskólanámi þar sem viðskiptatengdum greinum var hampað á kostnað
gagnrýninna fræða og háskólar landsins súpa nú seyðið af. Þess vegna er
bókin ekki einungis heimild um starfsemina í JL-húsinu þar sem um 250 manns
hafa tekið þátt, heldur einnig framlag til mennta- og menningarsögu Íslands
á örlagaríku tímabili. Og ekki má heldur gleyma að ReykjavíkurAkademían
getur lagt mikið af mörkum til endurmats og nýrrar uppbyggingar
háskólasamfélagsins eftir kreppuna miklu.

Við bjóðum bókina á tilboðsverði til vina og velunnara að fornu og nýju:
3500 kr. Tilboðið gildir til föstudagsins 4. desember 2009.

Hægt er nálgast hana á skrifstofu ReykjavíkurAkademíunnar kl. 10-12 alla
virka daga (þá þarf að greiða í reiðufé), eða greiða hana fyrirfram og panta
með tölvupósti á netfangið *ra at akademia.is*

Þá þarf að fylgja heimilisfang til að senda á og greiðslukvittun úr
heimabanka, upphæðin greiðist inn á:

0334 26 051385 – kt. 500506 0240

Fyrir þá sem ekki geta sótt bókina er frí heimsending.


-- 
ReykjavíkurAkademían

Hringbraut 121, 107 Reykjavík
Sími/Phone: + 354 562 8561
Fax: + 354 562 8528
Netfang/email: ra at akademia.is
Veffang/website: www.akademia.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20091120/56449726/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list