Til vina og velunnara ReykjavíkurAkademíunnar:

Sértilboð á merkilegri bók:

Fræðimenn
í flæðarmáli: Saga ReykjavíkurAkademíunnar, eftir dr. Árna
Daníel Júlíusson sagnfræðing. Bókin er 115
blaðsíður í allstóru broti, prýdd fjölda mynda og litprentuð.

Þar er tilurð, saga og starfsemi
ReykjavíkurAkademíunnar rakin og sett í vítt mennta- og
menningarsögulegt samhengi. ReykjavíkurAkademían var nýtt og
gagnrýnið afl á akademískum vettvangi og bjó sjálfstætt
starfandi fræðimönnum starfsumhverfi sem auðveldaði þeim að
láta til sín taka. Hún krafðist þess líka að kraftar vel
menntaðra fræðimanna í hug- og félagsvísindum yrðu nýttir
betur.

ReykjavíkurAkademían mótaðist á
tímabili sem einkenndist af leyndum og ljósum fjandskap í garð
gagnrýninna hug- og félagsvísinda. Í bókinni er meðal annars
sýnt fram á hvernig stjórnvöld byggðu upp alvarlega slagsíðu í
íslensku háskólanámi þar sem viðskiptatengdum greinum var
hampað á kostnað gagnrýninna fræða og háskólar landsins súpa
nú seyðið af. Þess vegna er bókin ekki einungis heimild um
starfsemina í JL-húsinu þar sem um 250 manns hafa tekið þátt,
heldur einnig framlag til mennta- og menningarsögu Íslands á
örlagaríku tímabili. Og ekki má heldur gleyma að
ReykjavíkurAkademían getur lagt mikið af mörkum til endurmats og
nýrrar uppbyggingar háskólasamfélagsins eftir kreppuna miklu.

Við bjóðum bókina á tilboðsverði
til vina og velunnara að fornu og nýju: 3500 kr. Tilboðið gildir til föstudagsins 4. desember 2009.

Hægt er nálgast hana á skrifstofu
ReykjavíkurAkademíunnar kl. 10-12 alla virka daga (þá þarf að
greiða í reiðufé), eða greiða hana fyrirfram og panta með
tölvupósti á netfangið ra@akademia.is

Þá þarf að fylgja heimilisfang
til að senda á og greiðslukvittun úr heimabanka, upphæðin
greiðist inn á:

0334 26 051385 – kt. 500506 0240

Fyrir þá sem ekki geta sótt bókina
er frí heimsending.

ReykjavíkurAkademían

Hringbraut 121, 107 Reykjavík
Sími/Phone: + 354 562 8561
Fax: + 354 562 8528
Netfang/email: ra@akademia.is
Veffang/website: www.akademia.is