[Gandur] Norður: íslensk börn ímynda sér Norðrið. - fréttatilkynning

Skrifstofa RA ra at akademia.is
Fri Nov 13 10:21:14 GMT 2009


Norður: íslensk börn ímynda sér Norðrið.



*ReykjavíkurAkademían og kanadíska háskólaútgáfan Presses de l'Université du
Québec hafa gefið út bókina Norður: íslensk börn ímynda sér Norðrið.*

[image: nordur.jpg]









Bókin kemur út á þremur tungumálum í ritröðinni Imagoborealis, sem er ætlað
er varpa ljósi á og túlka hinar margvíslegu táknmyndir Norðursins, vetrarins
og Norðurheimskautsins.







 Ritstjórar eru Daniel Chartier og Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, sem skrifa
formála. Meginuppistaða bókarinnar eru einstaklega lífleg og falleg myndverk
íslenskra barna og unglinga sem ímynda sér "Norðrið". Myndverkin voru unnin
í Myndlistaskóla Reykjavíkur í tengslum við ráðstefnuna Images of the North,
sem ReykjavíkurAkademían stóð fyrir árið 2006.

Á bakhlið bókarinnar segir: "Sérhver hinna ímynduðu heima sem hér finnast
næra þekkingu okkar á táknkerfi Norðursins og þröngvar okkur til að íhuga
hversu margbrotið og óáþreifanlegt hugtakið "Norðrið" er.

Fagnað verður útkomu bókarinnar með sýningu á myndverkunum í
Þjóðminjasafninu föstudaginn 13. nóvember kl. 16.

-- 
ReykjavíkurAkademían

Hringbraut 121, 107 Reykjavík
Sími/Phone: + 354 562 8561
Fax: + 354 562 8528
Netfang/email: ra at akademia.is
Veffang/website: www.akademia.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20091113/d14a5ac6/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list