[Gandur] Hversdagsvald: Matur, drykkur og ímyndir miðvikudaginn 21. janúar

ReykjavíkurAkademían ra at akademia.is
Mon Jan 19 10:38:37 GMT 2009


Ímyndir Íslands

*Miðvikudagur 21. janúar kl. 20:00-22:00*

ReykjavíkurAkademíunni Hringbraut 121, 4. hæð

/
/*/Hversdagsvald: Matur, drykkur og ímyndir/

**Þátttakendur: *Hildigunnur Ólafsdóttir, Kristinn Schram.
*Athugasemdir og viðbrögð: *Ármann Jakobsson
*Fundarstjóri: *Ólöf Gerður Sigfúsdóttir.

Hversdagsvald - matur, drykkur og ímyndir

"Þjóðlegar" veitingar í fundarhléi

Hildigunnur Ólafsdóttir, dr. í afbrotafræði, fjallar um vel þekktar ímyndir
af áfengisneysluvenjum Íslendinga og tilhneiginguna til að skapa þeim
sérstöðu. Ennfremur verður rætt um hvernig þessar ímyndir hafa verið 
notaðar
sem tæki til aðgreiningar þjóðfélagshópa, til að réttlæta nýja siði og í
áfengistengdri ferðamennsku. Þá verður gerð grein fyrir því hvernig þær
birtast í áfengispólitískri stefnumótun.

Með hliðsjón af rannsókum sínum meðal Íslendinga erlendis mun Kristinn
Schram, þjóðfræðingur og forstöðumaður Þjóðfræðistofu, fjalla um það 
hvernig
íslenskar matarhefðir eru iðkaðar og leiknar bæði á mannamótum og í
fjölmiðlum. Varpað verður ljósi á það baksvið ímynda af framandi og
sérvitri þjóð á norðurhjara sem viðhaldið er í hnattrænum fjölmiðlum og
sögulegum skírskotunum. Sjónum verður beint að því hvernig Íslendingar hafa
tekið þessar ímyndir í sínar hendur í þverþjóðlegum samskiptum. Tekin verða
dæmi af samskiptum íslenskra námsmanna erlendis við heimamenn sem og
útrásarvíkingana svokölluðu og þau skoðuð í ljósi hversdagslegrar
valdabaráttu og íroníu.



-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20090119/a28e7162/attachment.html


More information about the Gandur mailing list