[Gandur] Endurfundir - fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna!

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Tue Dec 1 08:45:10 GMT 2009


Endurfundir
Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna!
Ákveðið hefur verið að framlengja sýninguna Endurfundi. Sýningunni er 
ætlað að höfða til allra aldurshópa en á henni má sjá fjölda gripa sem 
fundust við fornleifarannsóknirnar á árunum 2001-2005. Auk gripanna er 
hægt að skoða myndasýningar frá uppgröftunum,  leira, stimpla eða fara í 
fræðsluspor fjölskyldunnar og leysa skemmtilegar þrautir. Einnig er boðið 
upp á leynikassa sem eru skemmtilegir fyrir yngstu gestina – og jafnvel þá 
sem eldri eru! Sýningatexta og hljóðleiðsögn samdi Pétur Gunnarsson, en 
textarnir veita skemmtilega innsýn í hugarheim fólks á öldum áður.

Á árunum 2001-2005 styrkti Kristnihátíðarsjóður fornleifarannsóknir á 
helstu sögustöðum þjóðarinnar. Á sýningunni má sjá úrval þeirra gripa sem 
fundist hafa hingað til á átta þessarra staða, en mörgum rannsóknanna er 
enn ólokið.  Kristnihátíðarsjóður var stofnaður til að minnast þess að 
1000 ár voru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á Íslandi. 
Hlutverk sjóðsins var annars vegar að efla fræðslu og rannsóknir á 
menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífsgildi 
hennar, siðferði og framtíðarsýn og hins vegar að kosta 
fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar.

Með bestu kveðju,
Helga Vollertsen
Kynningarstjóri
Þjóðminjasafni Íslands
v/Suðurgötu
101 Reykjavík
s. 5302222/gsm 8242039
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20091201/22f06302/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 40597 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20091201/22f06302/attachment-0002.gif 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 31362 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20091201/22f06302/attachment-0003.gif 


More information about the Gandur mailing list