[Gandur] Bláalónsganga á annan í páskum

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Tue Apr 7 08:52:39 GMT 2009


Bláalónsganga á annan í páskum

Á annan í páskum verður boðið upp á gönguferð með leiðsögn um  
stórbrotið umhverfi Bláa Lónsins. Gangan hefst kl. 13.00 við bílastæði  
Bláa lónsins og er áætlað að hún taki um 3 klukkustundir. Möguleiki er  
að fara rúmlega hálfan hring og fá akstur til baka. Gangan er í boði  
Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar. Enginn þátttökukostnaður er í gönguna.

Gengið verður m.a. um mosagróið Illahraun, framhjá Rauðhól (gígnum sem  
hraunið kom úr á sögulegum tíma), farið með Skipstíg, fornri þjóðleið,  
haldið austur með norðurhlíðum Þorbjarnarfells og inn á Baðsvelli. Þar  
er ætlunin m.a. að kíkja á þjófaslóðir og hin gömlu sel Grindvíkinga.  
Þá verður gengið yfir að svæði Hitaveitu Suðurnesja og um hið  
litskrúðuga lónssvæði að lækningalindinni og endað í heilsulind. Boðið  
er upp á aðgangseyri, tvo fyrir einn í heilsulind. Sigrún Jónsd.  
Franklín verður leiðsögumaður í göngunni. Áhersla er á að ferðin og  
fræðslan verði með þeim hætti að bæði  börn og  fullorðnir hafi gagn  
og gaman af. Góður skófatnaður æskilegur og gott er að taka með sér  
smá nesti. Allir þátttakendur eru á eigin ábyrgð.

Á annan í páskum verður vatnsleikfimi í boði fyrir gesti Bláa  
lónsins.   Leikfimin fer fram í lóninu kl 14.30 og kl 16.30. Rúnar  
Sigríksson, íþróttakennari og einkaþjálfari í Hreyfingu, heilsulind  
mun sjá um kennsluna.
Sérstakur páskamatseðill verður í boði á veitingastaðnum Lava alla  
páskadagana. Börn borða frítt af matseðli panti fullorðinn aðalrétt af  
matseðli.  Tvö börn á hvern fullorðinn. Þá verður Kynning og tilboð á  
Blue Lagoon húðvörum í verslun. Öll börn fá páskaegg á meðan birgðir  
endast.  Ávalt er frír aðgangur í Bláa Lónið fyrir börn 13 ára og  
yngri í fylgd með forráðamönnum.

Gleðilega páska

Sigrún Jónsd. Franklín

gsm 6918828



Kveðja

sjf meningarmiðlun


-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: top_logo.jpg
Type: image/jpeg
Size: 20453 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20090407/46ff8356/top_logo-0001.jpg
-------------- next part --------------








More information about the Gandur mailing list