[Gandur] Fwd: Auglýst eftir safnstjóra í fulla stöðu

Valdimar Tryggvi Hafstein vth at hi.is
Mon Apr 6 10:25:15 GMT 2009


Staða safnstjóra við Byggða- og ljósmyndasafn Vestmannaeyja er laus
til umsóknar.


Stjórn Byggða- og ljósmyndasafns Vestmannaeyja auglýsir eftir safnstjóra
í fulla stöðu (100%). Helstu verkefni safnstjóra eru tvíþætt: Annars
vegar mun safnstjóri annast rekstur safnsins, uppsetningu sýninga og
umsjón með völdum samstarfsverkefnum. Hins vegar er safnstjóra ætlað að
leiða endurskipulagningu safnsins í samstarfi við stjórn og sérfræðinga
á því sviði.

Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi  sem nýtist í starfi og búa
yfir góðri tölvu- og tungumálakunnáttu. Æskilegt er að umsækjendur hafi
reynslu á sviði reksturs og safnamála, erlendra samstarfsverkefna og af
gerð styrkumsókna.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi
stéttarfélags.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsreynslu sendist til
Safnahúss Vestmannaeyja, b.t. Kára Bjarnasonar, Kirkjuvegi 52, 900
Vestmannaeyjum eigi síðar en 28. apríl 2009.

Allar nánari upplýsingar um starfið veitir stjórn safnsins: Kári
Bjarnason 8929286; Kristín Jóhannsdóttir 8466497 og Sigurður Vilhelmsson
8939402.




-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20090406/03b1d797/untitled-2.html


More information about the Gandur mailing list