[Gandur] Haust þ ing Þjóð fr æð istofu 13. september

kristinn at akademia.is kristinn at akademia.is
Tue Sep 9 13:35:15 GMT 2008


Þjóðfræðistofa býður þjóðfræðinga sérstaklega velkomna á Haustþing,  laugardaginn 13. september kl. 15:00, Höfðagötu 3 á Hólmavík,  þar sem fræðasetrið verður kynnt fyrir áhugasömum. Þá mun Cliona O'Carroll flytja erindi um gerð þjóðfræðilegra útvarpsþátta en Cliona er lektor við Háskólann í Cork á Írlandi og situr í fagráði Þjóðfræðistofu.

Þjóðfræðistofa er rannsóknarstofnun og fræðasetur sem starfrækt er á Ströndum og sinnir rannsóknum og miðlun á landsvísu. Fyrirhugað er að hún verði sjálfbær vinnustaður háskólamenntaðra starfsmanna sem hafa menntun í íslenskum fræðum, þjóðfræði, sagnfræði og miðlun menningarsögu. Á Þjóðfræðistofu er unnið að rannsóknar- og miðlunarverkefnum um íslenska þjóðfræði og margvíslegum samvinnuverkefnum á sviði þjóðfræði, menningar og lista. Á meðal yfirstandandi verkefna eru rannsóknir á ímynd Íslendinga, matarmenningu og gerð heimildamyndar um slóðir Gísla sögu Súrssonar. Jafnframt kemur Þjóðfræðistofa að upplýsingamiðstöð um íslenska þjóðtrú og þjóðfræði, þar sem veittar eru upplýsingar og fyrirspurnum svarað frá fjölmiðlum, listamönnum, stofnunum og einstaklingum, bæði hér á landi og erlendis frá.

Erindi Cliona O'Carroll nefnist "How's it going, boy?": community ethnography for radio in Cork, Ireland. Þar fjallar hún um hið svokallaða Northside Folklore Project sem er samfélagslegt verkefni þar sem safnað var frásögnum fólks í Cork á Írlandi. Gerð var þjóðfræðileg útvarpsþáttaröð sem kannaði borgina frá sjónarhóli íbúanna og endurspeglaði þannig fjölbreyttan þjóðernisbakgrunn og persónulegar upplifanir fjölmargra Corkverja.  Verkefnið vakti upp  margar spurningar um samspil þjóðfræði og fjölmiðlunar, fólksflutninga og staðarvitund  og hvaða hagnýtu möguleikar kunni að felast í samfélagslegum þjóðfræðiverkefnum. Nánar um verkefnið á http://www.ucc.ie/research/nfp/.  Erindið verður flutt á ensku.

Allar frekari upplýsingar gefur Kristinn Schram - netfang kristinn at akademia.is .


More information about the Gandur mailing list