[Gandur] Geitabúskapur í Grindavík

Eydís Björnsdóttir eydisb at hi.is
Mon Sep 8 22:00:43 GMT 2008


Þjóðháttakynning í Saltfisksetrinu, Hafnargötu 12a, Grindavík,
fimmtudaginn 11. september kl. 20.
Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir, geitabóndi Háafelli Borgarfirði kemur í
heimsókn og fjallar um geitur, búskapinn og afurðir geita. Jafnvel, 
verður boðið upp á að bragða á kiðlingakjöti og geitamjólk. Jóhanna er
eini bóndinn á landinu sem er með fleiri en 100 geitur. Íslenski
geitastofninn er í mikilli útrýmingarhættu og talið er að á Íslandi sé
ekki nema um 500 geitur. Kollótti hluti stofnins er eingöngu eftir á
Háafelli.
Merki Grindavíkur er geithafur. Í Landnámu kemur  fram að Hafur-Björn hafi
(um 930)með liði sínu farið vestur til Grindavíkur og sest þar að: „Björn
dreymdi um nótt, at bergbúi kæmi at honum ok bauð at gera félag við hann,
en hann þóttist játa því. Eftir þat kom hafr til geita hans, ok tímgaðist
þá svá skjótt fé hans, at hann varð skjótt vellauðigr. Síðan var hann
Hafr-Björn kallaðr.“
Er því vel við hæfi að Grindvíkingar sem og aðrir áhugasamir mæti og
fræðist um geitur og styðji Jóhönnu í baráttunni við að koma geitabúskap
til vegs og virðingar á ný.
Þjóðháttakynningin er liður í viðburða- og menningardagskrá Grindavíkur
2008, sjá www.grindavik.is

Sigrún Jónsd. Franklín
verkefnastjóri
gsm 6918828/sjf at internet.is






More information about the Gandur mailing list