[Gandur] Sjóræningjar í Norðurhöfum: Ólafur Egilsson og Tyrkjaránið í sögulegu samhengi

ReykjavíkurAkademían ra at akademia.is
Wed Oct 15 15:43:42 GMT 2008


*
Sjóræningjar í Norðurhöfum*

*Ólafur Egilsson og Tyrkjaránið í sögulegu samhengi*

*Alþjóðleg ráðstefna í Vestmannaeyjum helgina 17.-19. október*

* *

                                                           Þeir skildu 
eftir sig sviðna jörð...

Árið 1627 lagði séra Ólafur Egilsson upp í langferð frá Alsír til 
Íslands. Hann var sendur af stað, peningalaus og allslaus, til að heimta 
lausnargjald fyrir samlanda sína sem rænt hafði verið í Tyrkjaráninu á 
Íslandi sex mánuðum fyrr. Ferðalag hans norður alla Evrópu tók níu 
mánuði og lá leið hans m.a. um Ítalíu, Frakkland, Holland og Danmörku. Á 
þessari ferð treysti hann því statt og stöðugt að Drottinn myndi leiða 
hann í gegnum þrautirnar. Eftir að heim kom ritaði hann reisubók, sem 
fram til þessa hefur aðeins verið til á íslensku.

Tyrkjaránið 1627 er almennt talið einn af skelfilegri atburðum 
Íslandssögunnar. Herjað var á Austfirðina, Suðurnesin og Vestmannaeyjar 
og talið er að hátt í fjögur hundruð Íslendingum hafi verið rænt í 
ránsferð alsískra sjóræningja. Siglt var með þá suður Atlantshafið uns 
komið var í höfn í Algeirsborg þar sem fólkið var selt á þrælamarkaði.

 Í tilefni af útkomu enskrar þýðingar á Reisubók séra Ólafs Egilssonar 
heldur Sögusetur 1627 alþjóðlega ráðstefnu þar sem munu koma saman 
íslenskir og alþjóðlegir fræðimenn til að fjalla um Tyrkjaránið og skoða 
það í sögulegu samhengi á alþjóðavísu.

Gestir ráðstefnunnar verða m.a. alsírski rithöfundurinn og fræðimaðurinn 
Mohamed Magani og Robert C. Davis frá Ohio háskóla sem fjalla um 
Tyrkjaránið út frá fólksflutningum og hnattvæðingu. Norski fræðimaðurinn 
Torbjorn Odegaard flytur fyrirlestur um Norður-Afríku séða með augum 
tveggja skandinavískra þræla. Karl Smári Hreinsson og Adam Nichols ræða 
um reisu séra Ólafs Egilssonar og Þorsteinn Helgason, sagnfræðingur 
ásamt Steinunni Jóhannesdóttur, rithöfundi,  fjalla um ránin út frá 
reynslu Íslendinga.

Ráðstefnan er haldin í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyjum.

Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis. Upplýsingar um 
dagskrá og fyrirlesara og skráningu er að finna á www.1627.is 
<http://www.1627.is>

 

---------------------

 

Nánari upplýsingar veita: 

Steinunn Jóhannesdóttir

Rithöfundur

Sími 562 4432

 
Sigurður Vilhelmsson,

formaður stjórnar Söguseturs 1627

sími 893-9402

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20081015/e339a1b3/attachment.html


More information about the Gandur mailing list