<!DOCTYPE html PUBLIC "-//W3C//DTD HTML 4.01 Transitional//EN">
<html>
<head>
</head>
<body bgcolor="#ffffff" text="#000000">
<p class="MsoNormal" style="text-align: center;" align="center"><big><font
color="#cc0000"><b style=""><span style="font-size: 14pt;" lang="SV"><br>
Sjóræningjar
í Norðurhöfum<o:p></o:p></span></b></font></big></p>
<p class="MsoNormal" style="text-align: center;" align="center"><b
style=""><span style="font-size: 14pt;" lang="SV"><big><font
color="#cc0000">Ólafur
Egilsson og Tyrkjaránið í sögulegu samhengi</font></big><o:p></o:p></span></b></p>
<p class="MsoNormal" style="text-align: center;" align="center"><b><span
style="" lang="SV">Alþjóðleg ráðstefna í Vestmannaeyjum helgina
17.-19.
október<o:p></o:p></span></b></p>
<p class="MsoNormal" style="text-align: justify;"><b><span style=""
lang="SV"><o:p> </o:p></span></b></p>
<p class="MsoNormal" style="text-align: justify;" align="center"><span
style="" lang="SV"><big><font color="#cc0000">
Þeir skildu eftir sig sviðna jörð...</font></big><o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal" style="text-align: justify;"><span style=""
lang="SV"><o:p></o:p>Árið 1627 lagði séra Ólafur Egilsson upp í
langferð frá Alsír til Íslands. Hann
var sendur af stað, peningalaus og allslaus, til að heimta lausnargjald
fyrir
samlanda sína sem rænt hafði verið í Tyrkjaráninu á Íslandi sex mánuðum
fyrr. Ferðalag
hans norður alla Evrópu tók níu mánuði og lá leið hans m.a. um Ítalíu,
Frakkland, Holland og Danmörku. Á þessari ferð treysti hann því statt
og
stöðugt að Drottinn myndi leiða hann í gegnum þrautirnar. Eftir að heim
kom ritaði
hann reisubók, sem fram til þessa hefur aðeins verið til á íslensku.<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal" style="text-align: justify;"><span style=""
lang="SV"><o:p></o:p>Tyrkjaránið 1627 er almennt talið einn af
skelfilegri atburðum Íslandssögunnar.
Herjað var á Austfirðina, Suðurnesin og Vestmannaeyjar og talið er að
hátt í
fjögur hundruð Íslendingum hafi verið rænt í ránsferð alsískra
sjóræningja. Siglt
var með þá suður Atlantshafið uns komið var í höfn í Algeirsborg þar
sem fólkið
var selt á þrælamarkaði.<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal" style="text-align: justify;"><span style=""
lang="SV"><span style=""> </span><o:p></o:p>Í tilefni af útkomu
enskrar þýðingar á Reisubók séra Ólafs Egilssonar heldur
Sögusetur 1627 alþjóðlega ráðstefnu þar sem munu koma saman íslenskir
og
alþjóðlegir fræðimenn til að fjalla um Tyrkjaránið og skoða það í
sögulegu
samhengi á alþjóðavísu. <o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal" style="text-align: justify;"><span style=""
lang="SV"><o:p></o:p>Gestir ráðstefnunnar verða m.a. alsírski
rithöfundurinn og fræðimaðurinn
Mohamed Magani og Robert C. Davis frá Ohio háskóla sem fjalla um
Tyrkjaránið út
frá fólksflutningum og hnattvæðingu. Norski fræðimaðurinn Torbjorn
Odegaard
flytur fyrirlestur um Norður-Afríku séða með augum tveggja
skandinavískra
þræla. Karl Smári Hreinsson og Adam Nichols ræða um reisu séra Ólafs
Egilssonar
og Þorsteinn Helgason, sagnfræðingur ásamt Steinunni Jóhannesdóttur,
rithöfundi, <span style=""> </span>fjalla um ránin út frá
reynslu Íslendinga.<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal" style="text-align: justify;"><span style=""
lang="SV">Ráðstefnan er haldin í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyjum. <o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal" style="text-align: justify;"><span style=""
lang="SV"><o:p></o:p>Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og aðgangur
ókeypis. Upplýsingar um dagskrá
og fyrirlesara og skráningu er að finna á </span><a
href="http://www.1627.is" target="_blank"><span style="" lang="SV">www.1627.is</span></a><span
style="" lang="SV"><o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="" lang="SV"><o:p> </o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="" lang="SV">---------------------<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="" lang="SV"><o:p> </o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="" lang="SV">Nánari
upplýsingar veita:<o:p> </o:p><br>
</span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="" lang="SV">Steinunn
Jóhannesdóttir<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="" lang="SV">Rithöfundur<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="" lang="SV">Sími 562 4432<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="" lang="SV"><o:p> </o:p><br>
Sigurður
Vilhelmsson,<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="" lang="SV">formaður stjórnar
Söguseturs 1627<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="" lang="SV">sími 893-9402<o:p></o:p></span></p>
</body>
</html>