[Gandur] Haustnámskeið um munnlega sögu og aðferðir henna r

Eydís Björnsdóttir eydisb at hi.is
Wed May 28 14:36:30 GMT 2008


Kæru viðtakendur,



Laugardaginn 13. september býður Miðstöð munnlegrar sögu námskeið þar sem
munnleg saga og helstu aðferðir hennar verða kynntar. Námskeiðið verður
kennt í Þjóðarbókhlöðu og er fjöldi þáttakenda takmarkaður við tólf.
Þátttökugjald er 10.000 kr en 7000 krónur fyrir námsmenn. Innifalið í
verði eru kennslugögn og kaffiveitingar í hléi fyrir og eftir hádegi.
Kennarar á námskeiðinu eru Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor við
Stofnun Árna Magnússonar, og Unnur María Bergsveinsdóttir, sagnfræðingur
og verkefnastjóri Miðstöðvar munnlegrar sögu.



Dagskrá námskeiðsins er sem hér segir:



10.00-11.30 Hvað er munnleg saga?

Saga aðferðarinnar er rakin og sérkenni í hennar í samanburði við aðrar
sagnfræðilegar aðferðir rædd. Vikið verður að notkun munnlegra heimilda
innan annarra fræðigreina. Tæpt verður á helstu kenningum um minnið og
staða munnlegrar sögu hérlendis kortlögð.



11.45-13.00 Undirbúningur viðtals og tækjabúnaður

Farið er yfir helstu atriði sem skipta máli þegar viðtal eða röð viðtala
eru undirbúin. Leiðbeint verður um það hvernig best megi nálgast
væntanlega viðmælendur. Tækjabúnaður og beiting hans kynnt.



14.00-15.30 Viðtalstækni

Hvað einkennir góðan spyril? Eftir hverju hlustar hann og hvernig?
Þáttakendur spreyta sig á töku viðtals.



15.45-17.00 Eftir viðtalið

Úrvinnsla, frágangur og varðveisla viðtalsins verða rædd. Hvernig skal
skrifa útdrátt úr viðtali, hvernig á að skrifa viðtalið upp og hvenær á
hvor aðferðin við? Helstu forrit sem gagnast við úrvinnslu viðtala kynnt.
Höfundaréttur og siðleg viðmið munnlegrar sögu skýrð.





Unnur María Bergsveinsdóttir veitir allar nánari upplýsingar og tekur við
óskum um skráningu í síma 525-5776 eða í gegnum tölvupóst
(unnurm at bok.hi.is). Athugið að í fyrra komust færri að en vildu. Sjá
einnig á http://www.munnlegsaga.is



Kær kveðja,

Unnur María



----

Unnur María Bergsveinsdóttir, verkefnisstjóri

Miðstöð munnlegrar sögu

Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Arngrímsgötu 3
107 Reykjavík



sími: 525-5775
gsm: 691-0374
netfang: unnurm at bok.hi.is <mailto:unnurm at bok.hi.is>
vefsíða: www.munnlegsaga.is <http://www.munnlegsaga.is>



_______________________________________________
Minni mailing list
Minni at listar.hi.is
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/minni

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080528/3b5464fb/untitled-1.html


More information about the Gandur mailing list