[Gandur] AF STAÐ 4. ferð

Adalheidur Gudmundsdóttir adalh at hi.is
Tue May 20 23:06:09 GMT 2008


AF STAÐ á Reykjanesið

gönguferðir í maí – Stórhöfðastígur




AF STAÐ á Reykjanesið:  4. ferð, laugardaginn 24. maí, kl. 11,  
Stórhöfðastígur,  Djúpavatnsleið/ Hrútagjá – Krýsuvíkurvegur/ 
Bláfjallaleið. 7 km


Upphafsstaður: Akið frá Hafnarfirði Krýsuvíkurleið og beygið til hægri  
við skilti sem á stendur Djúpavatn, akið Djúpavatnsleið í um 6 km  að  
skilti þar sem á stendur Hrútagjá,



Stórhöfðastígur er hluti af  þjóðleið milli Krýsuvíkur og  
Hafnarfjarðar. Gengið verður frá Hrútagjá og Stórhöfðastíg fylgt í  
Brunntorfur, að mótum Krýsuvíkurvegar og Bláfjallaleiðar. Svæðið býr  
yfir mikilli náttúru- og jarðfræðisögu  sem leiðsögumenn munu miðla á  
leiðinni. Áætlað er að gangan taki  ca. 3-4 klst. með fræðslustoppum.  
Ferðamálasamtök Suðurnesja hafa látið stika leiðina. Frekar auðveld  
leið. Gott er að vera með nesti og í góðum skóm. Allir á eigin ábyrgð.  
Akstur til baka kr. 500. Frítt fyrir börn.



Gangan er fjórða ferð af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um  
hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða í maí  
´08. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum  
fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 3 - 5 gönguleiðir verður  
dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá útivistarvörur frá  
Cintamani. Dregið verður eftir síðustu gönguna. Þátttakendur eru  
beðnir um að muna eftir að taka þátttökuseðla með í ferðir.

Gönguferðin er í boði Ferðamálasamtaka Suðurnesja og sjf  
menningarmiðlunar.



  Nánari upplýsingar um ferðir:

www.sjfmenningarmidlun.is

sjf at internet.is/gsm. 6918828

>
>
> Bestu kveðjur
> Sigrún Jónsd. Franklín
> verkefnastjóri
> gsm 6918828
>

-------------- next part --------------
Skipped content of type multipart/mixed


More information about the Gandur mailing list