[Gandur] Ólíkar hugmyndir um varðveislu fornminja - Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir flytur fyrirlestur 25. mars kl. 12.05

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Wed Mar 19 14:46:36 GMT 2008


Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélags Íslands 
Þriðjudaginn 25. mars 2008, klukkan 12.05 
Þjóðminjasafni Íslands 


Ólíkar hugmyndir um varðveislu fornminja á fyrri hluta nítjándu aldar 

Árið 1807 var Hinni konunglegu fornleifanefnd komið á fót í Kaupmannahöfn. 
Nefndinni var ætlað að friða fornleifar í ríkjum Danakonungs og safna 
forngripum til Fornnorræns safns sem staðsetja átti í höfuðstað ríkisins. 
Þó að meginorsök fyrir stofnun nefndarinnar hafi verið hröð eyðing 
fornminja í Danmörku í lok 18. aldar þá er hugmyndafræðilegur bakgrunnur 
rakinn til vaxandi áhuga á norrænni fornfræði og vaxandi áhrifa rómantísku 
stefnunnar í Danmörku. 

Fræðilegar tilraunir fornfræðinga til þess að varpa ljósi á sögulega þróun 
á forsögulegum tímum gengu nokkuð gegn rómantískum hugmyndum um andlegt 
samband við fortíð og forfeður. Þessi mismunandi nálgun í hugmyndum kom 
skýrt fram í sýninni á hvers vegna og hvernig átti að varðveita fornminjar 
og kristallast m.a. í samstarfi fornfræðingsins Finns Magnússon og hins 
rómantíska Jónasar Hallgrímssonar á árunum 1839-1842. Á ferðum  Jónasar um 
Ísland skoðaði hann fornminjar fyrir Finn og sendi honum reglulega 
skýrslur til Kaupmannahafnar. Skýrslurnar nýtti Finnur í fræðilegum 
skrifum meðan að í dagbókum Jónasar og í smásögunni Hreiðars-hóll er að 
finna öllu rómantískri sýn á fornminjarnar. 

Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir er doktorsnemi í sagnfræði við háskólann í 
Gautaborg og gestafræðimaður á Þjóðminjasafni Íslands. 


Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal 
Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. 
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. 







Guðbrandur Benediktsson
Deildarstjóri miðlunar / Head of Public Programmes
Minjasafn Reykjavíkur / Reykjavik City Museum
Árbæjarsafn Kistuhyl, 110 Reykjavík
Beinn sími 4116313 / Dir. tel. +354 4116313
Farsími 6936996 / Mobile +354 6936996
www.minjasafnreykjavikur.is / www.reykjavikmuseum.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080319/d94b9234/attachment.html


More information about the Gandur mailing list