Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélags Íslands

Þriðjudaginn 25. mars 2008, klukkan 12.05

Þjóðminjasafni Íslands

Ólíkar
hugmyndir um varðveislu fornminja á fyrri hluta nítjándu aldar

Árið 1807 var Hinni konunglegu fornleifanefnd
komið á fót í Kaupmannahöfn. Nefndinni var ætlað að friða fornleifar í
ríkjum Danakonungs og safna forngripum til Fornnorræns safns sem
staðsetja átti í höfuðstað ríkisins. Þó að meginorsök fyrir stofnun nefndarinnar
hafi verið hröð eyðing fornminja í Danmörku í lok 18. aldar þá er hugmyndafræðilegur
bakgrunnur rakinn til vaxandi áhuga á norrænni fornfræði og vaxandi áhrifa
rómantísku stefnunnar í Danmörku.

Fræðilegar tilraunir fornfræðinga til þess
að varpa ljósi á sögulega þróun á forsögulegum tímum gengu nokkuð gegn
rómantískum hugmyndum um andlegt samband við fortíð og forfeður. Þessi
mismunandi nálgun í hugmyndum kom skýrt fram í sýninni á hvers vegna og
hvernig átti að varðveita fornminjar og kristallast m.a. í samstarfi fornfræðingsins
Finns Magnússon og hins rómantíska Jónasar Hallgrímssonar
á árunum 1839-1842. Á ferðum  Jónasar um Ísland skoðaði hann fornminjar
fyrir Finn og sendi honum reglulega skýrslur til Kaupmannahafnar. Skýrslurnar
nýtti Finnur í fræðilegum skrifum meðan að í dagbókum Jónasar og í smásögunni
Hreiðars-hóll er að finna öllu rómantískri sýn á fornminjarnar.

Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir er doktorsnemi
í sagnfræði við háskólann í Gautaborg og gestafræðimaður á Þjóðminjasafni
Íslands.

Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins
fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05
til klukkan 12.55.

Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Guðbrandur Benediktsson

Deildarstjóri miðlunar / Head of Public
Programmes

Minjasafn Reykjavíkur / Reykjavik City
Museum

Árbæjarsafn Kistuhyl, 110 Reykjavík

Beinn sími 4116313 / Dir. tel. +354
4116313

Farsími 6936996 / Mobile +354 6936996

www.minjasafnreykjavikur.is / www.reykjavikmuseum.is