[Gandur] Sauðfé, galdrar og tölvumál

Eydís Björnsdóttir eydisb at hi.is
Sun Jul 27 13:00:27 GMT 2008


Sæl, öll!

Nýr flokkur hefur bæst í hópinn á Rökstólum og sá flokkur er fyrir
tilkynningar um áhugaverða viðburði. Það eru þegar komnar nokkrar
tilkynningar þar inn. Skellið ykkur á http://www.createforum.com/rokstolar
ef þið viljið lesa nánar um frægustu sauðkind Íslandssögunnar, galdra og
siðferði í Strandasýslu á síðari hluta 17. aldar, tvær nýjar galdraskræður
og Ólafsdalshátíðina sem verður haldin 10. ágúst næstkomandi.

Það hefur borið á því að fólk lendi í vandræðum með staðfestingarkóðann í
skráningarferlinu. Ef þið hafið lent í þessu sama, ekki örvænta, reynið
frekar aftur og þetta næst á endanum.

Endilega verið óhrædd við að skrá ykkur og hefja umræðurnar.

Kveðja,
Eydís



More information about the Gandur mailing list