[Gandur] Gönguhátíð í Grindavík um verslunarmannahelgina

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Tue Jul 29 08:17:56 GMT 2008


AF STAÐ á Reykjanesið
Menningar- og sögutengd gönguhátíð í Grindavík
um verslunarmannahelgina.

Föstudagur 1. ágúst:
Mæting kl. 20 við Saltfisksetrið, Hafnargötu 12a. Gengið verður með
leiðsögn um Járngerðarstaðahverfi, gamla bæjarhlutann í Grindavík í 1-2
tíma. Fróðleikur í Flagghúsinu í lok göngu. Gangan er í boði
Grindavíkurbæjar og Saltfisksetursins.

Laugardagur 2. ágúst:
Mæting kl. 11 við Ísólfsskála, sem er í um 6 km austur af Grindavík, á
Krýsuvíkurleið. Gengið verður með leiðsögn um Selatanga þar sem sjá má
minjar um verbúðir og sjósókn fyrri tíða. Síðan verður gengið eftir
rekastíg um Katlahraunið sem er líkt og „Dimmuborgir“ með sínum
kyngimögnuðu hraunmyndunum. Gangan endar við Ísólfsskála og tekur um 2-3
tíma. Gott er að vera í góðum skóm. Aðstaða er til að grilla á  
Ísólfsskála
í lok göngu. Gangan er í boði Grindavíkurbæjar og Saltfisksetursins.

Sunnudagur 3. ágúst:
Mæting kl. 11 við Saltfisksetrið. Ekið með rútu að Móklettum á
Krýsuvíkurleið. Gengið verður með leiðsögn um gömlu þjóðleiðirnar,
Sandakraveg og Skógfellaveg og endað við Saltfisksetrið í  Grindavík.
Svæðið býður upp á  stórbrotna náttúru, jarðfræði og sögu. Gangan  
tekur um
5-6 tíma. Gott er að hafa með sér nesti og vera í góðum skóm. Í lok  
göngu
verður boðið upp á heilgrillað lamb á teini í Saltfisksetrinu. Verð kr.
1.200. Gangan er í boði Ferðamálasamtaka Suðurnesja.

Mánudagur 4. ágúst:
Mæting kl. 11 við bílastæði Bláa lónsins – Gengið með leiðsögn um  
hluta af
gömlum þjóðleiðum, Skipsstíg og  Árnastíg að Húsatóftum. Gangan tekur um
3-4 tíma. Svæðið býður upp á  stórbrotna náttúru, jarðfræði og sögu.  
Gott
er að hafa með sér nesti og vera í góðum skóm. Rútuferð til baka. Gangan
er í boði Bláa Lónsins sem auk þess býður upp á aðgangseyri, 2 fyrir 1 í
lónið í lok göngu.

Leiðsögumenn í ferðum: Ómar Smári Ármannsson og Sigrún Jónsd. Franklín

Ekkert þátttökugjald er í gönguferðir en rútugjald er kr. 500, frítt  
fyrir
börn 12 ára og yngri. Allir á eigin ábyrgð í ferðum.

Gönguhátíðin er liður í viðburða- og menningardagskrá Grindavíkur 2008.

Styrktar- og umsjónaraðilar: Grindavíkurbær, Saltfisksetrið, Bláa Lónið,
Ferðamálasamtök Suðurnesja, Eldfjallaferðir, FERLIR og sjf
menningarmiðlun.

Upplýsingar um tjaldsvæði Grindavíkur, gistingu, veitingar og aðra
þjónustu eru á www.grindavik.is eða í Saltfisksetrinu s. 4201190.

Nánari upplýsingar um ferðir eru á www.sjfmenningarmidlun.is, í gsm
6918828, sjf at internet.is, Sigrún Jónsd. Franklín








More information about the Gandur mailing list