[Gandur] Verkefnaráðning í samtímaljósmyndun

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Thu Jul 10 10:00:23 GMT 2008


Fréttatilkynning
Þjóðminjasafn Íslands auglýsti nýverið eftir umsóknum um verkefnaráðningu 
í samtímaljósmyndun. Með því vill safnið hvetja til markvissrar 
samtímaskráningar í ljósmyndun. 
Pétur Thomsen ljósmyndari var valinn úr hópi umsækjenda. Verkefnið sem 
hann sótti  til felst í því að mynda Ásfjall í Hafnarfirði og þær 
breytingar sem verða á náttúrufari þess og umhverfi samfara því að það fer 
í auknum mæli undir byggð.
Á Ásfjalli í Hafnarfirði má meðal annars finna eina hæstu byggð á 
höfuðborgarsvæðinu, gróin hverfi, fólkvang, friðlýst svæði, 
frístundabyggð, skógrækt og ný hverfi í uppbyggingu. 
Norðaustan í Ásfjalli er 3. áfangi Áslands í byggingu. Svæðið afmarkast af 
Reykjanesbraut að norðan, hlíðum Ásfjalls og fólkvangsmörkum til vestur og 
legu Kaldárselsvegar. Í þessu hverfi er að finna mjög blandaða byggð: 
einbýlishús, raðhús, parhús og fjölbýli.
Svæðið er lýsandi dæmi um stöðu íslensks samfélags í dag og þá miklu 
uppbyggingu sem átt hefur sér stað á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum 
árum. Nýtt hverfi er að vinna sér stað í náttúrunni í næsta nágrenni við 
friðlýstan fólkvang. En mikið hefur hægt á uppbyggingunni undanfarið vegna 
efnahagsástands í landinu. Margar eignir eru í sölu og margir húsgrunnar 
hafa staðið óhreyfðir í langan tíma. 
Verkefnið mun samanstanda af umhverfismyndum, myndum af húsum innan sem 
utan og portrettmyndum af íbúum á svæðinu.
Nánari upplýsingar um verkefnið gefur Pétur Thomsen í síma 899 8014

Með bestu kveðju,
Helga Vollertsen
Kynningarstjóri
Þjóðminjasafni Íslands
v/Suðurgötu
101 Reykjavík

Tel.: (354) 530 2222
GSM: (354) 824 2039
http://www.thjodminjasafn.is


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080710/60ce8a8b/attachment.html


More information about the Gandur mailing list