[Gandur] Íslandsmyndir í Hafnarhúsi

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Wed Jan 30 13:25:46 GMT 2008


Íslandsmyndir í Hafnarhúsi

 

Kviksaga frumsýnir, í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og
rannsóknarverkefnið Ísland og ímyndir Norðursins, heimildamyndina Huldufólk
102 eftir Nisha Inalsingh.

 

31. janúar 2008, kl. 17.30 – 19.30 í Hafnarhúsi.

 

Kristinn Schram, þjóðfræðingur, fylgir myndinni úr hlaði.

 

Að mynd lokinni munu meðal annars Kristinn, Terry Gunnell og Unnur Þóra
Jökulsdóttir ræða um myndina og hlutverk huldufólks í menningarlífi og ímynd
Íslands.

 

 

Um myndina

 

Ósýnileg þjóð á dularfullri eyju, lífseig þjóðtrú sem mótar líf Íslendinga,
gatnakerfi og jafnvel dagleg samskipti. Með þessa vaxandi mynd af landi og
þjóð í farteskinu kannar heimildamyndagerðamaðurinn Nisha Inalsingh Ísland
og leyndardóma náttúrunnar. Með mynd sinni Huldufólk 102, kannar hún
mismunandi skoðanir fólks til huldra vætta, kafar ofan í reynslusögur og
tengir við hnattræna stöðu landsins, einangrun, vetrarnætur og náttúruundur.
Með undirleik hljómsveita á borð við Múm og Sigur Rós er leitað svara við
leyndardómum og reynt á takmarkanir mannlegrar skynjunar. Sjónarspilinu er
ætlað að varpa ljósi á þær þverstæður sem búa í hlutskiptum manna:
einfaldleiki þess sem við búum við í okkar hversdagslífi gegnt þeim
margbreytileika sem við sjáum ekki í eigin heimi. Huldufólk 102 er fyrst í
röð Íslandsmyndasýninga Kviksögu í Hafnarhúsinu í ár. Hér eru
Íslandsfrumsýning að ræða en hún hefur hlotið lof á fjölmörgum alþjóðlegum
kvikmyndahátíðum. www.huldufolk102.com

 

Um Íslandsmyndir

 

Íslandsmyndir er yfirheiti á fjölbreyttum kvikmyndum sem eiga það
sameiginlegt að fjalla um Ísland og Íslendinga. Myndirnar eru margvíslegar
að eðli, s.s. fræðslumyndir, persónulegar ferðasögur, pólitískar
áróðursmyndir, sölumyndbönd flugfélaga, fiskiðnaðarins eða
landbúnaðarvöruframleiðenda og myndir sem skreyttu ræður farandfyrirlesara.
Kvikmyndirnar viðhalda og endurskapa ákveðnar ímyndir sem tekið höfðu að
mótast á 18. og 19. öld. Samfélagið breytist og Íslandsmyndir með en
takmarkanir miðilsins setja umfjöllunarefninu einnig nokkrar skorður.
Íslensk tunga hvarf nánast sem viðfangsefni, enda ekki mjög myndvæn. Saga
Íslands missti vægi og tengdist Þingvöllum og styttum af þjóðhetjum nánum
böndum. En náttúran hófst til vegs og virðingar. Íslendingar voru (og eru)
náttúrubörn í Íslandsmyndum en þegar kom fram á 5. áratug 20. aldar urðu
náttúrubörnin tæknivædd. Íslendingar, einkum íslenskir karlmenn, voru umfram
allt sjómenn og bændur sem börðust við náttúruöflin til að færa björg í bú
en höfðu jafnframt sigrast á náttúrunni með því að virkja hana til
húshitunar og rafmagnsframleiðslu. Er þetta ef til vill svipuð ímynd og við
sjáum í Íslandsmyndum nútímans? Þetta er meðal þess sem kannað verður í
sýningum og umræðum Kviksögu í vetur.

 

Um Kviksögu

 

Kviksaga er félagskapur um kvikmyndalist og fræði. Það er vettvangur fræði-
og áhugamanna á því sviði þar sem fræði og kvikmyndalist mætast t.d. við
gerð heimildamynda, vídeólistar, kennsluefnis eða sjónrænna rannsókna á
menningu og listum. Kviksaga stuðlar einnig að rannsókn á sjálfu
kvikmyndaforminu og er vettvangur fyrir áhugasama til að mætast, ræða og
vinna saman. Á síðastliðnu ári hefur Kviksaga efnt til sýninga á
heimildamyndum ásamt fræðilegri umfjöllun, haldið námskeið og staðið að
kvikmyndahátið. Áfram verður staðið að viðburðum og á vefritinu Kviksögu
www.kviksaga.is verður að finna ritstýrðar greinar, viðtöl, tilkynningar og
myndbrot á sviði fræða og kvikmyndlistar. Skrifstofa Kviksögu í
ReykjavíkurAkademíunni er öllum opin til skrafs og ráðagerða og til afnota
af myndefni og tengslaneti miðstöðvarinnar. Upplýsingar í 8661940 og
kviksaga at akademia.is

 

Síðastliðið ár stóð Kviksaga meðal annars að viðburðum í Tjarnarbíóí í
samvinnu við Fjalaköttinn þar sem saman fóru sýningar á heimildamyndum,
tónlistarflutningur, fræðileg umfjöllun og samræður við kvikmyndgerðamenn.
Af myndum má nefna svokallaðar Íslandsmyndir sem spanna alla tuttugustu
öldina, video- og tónlistarverkið Lífsblómið, heimildamyndir um frásagnir
sjúkraflutningamanna í Kaliforníu og leigubílstjóra í Edinborg og um
pönkbylgju í Suður-Kóreu. Þá má nefna viðburði sem sérstaklega voru helgaðir
verkum í vinnslu þar sem kvikmyndagerðamenn sýndu brot úr verkum sín, ræddu
undanfara og næstu skref við áhorfendur.

 

Um rannsóknarverkefnið Ísland og ímyndir Norðursins

 

www.inor.is

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080130/89e2c83b/attachment.html


More information about the Gandur mailing list