[Gandur] ENRICH

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Tue Jan 29 12:24:24 GMT 2008


Fréttatilkynning frá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni og Stofnun
Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

 

Íslensk handritasöfn taka þátt í evrópsku samvinnuverkefni

 

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Stofnun Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum taka þátt í evrópsku samvinnuverkefni sem hefur fengið
yfirskriftina ENRICH, sem stendur fyrir European Networking Resources and
Information concerning Cultural Heritage, en nefnist á íslensku: Evrópskar
net- og upplýsingaveitur um menningararfleifð. Tilgangur verkefnisins er að
veita aðgang frá einum stað að stafrænum myndum og lýsingum á handritum í
evrópskum handrita-, skjala- og minjasöfnum. Verkefnið mun standa yfir í tvö
ár og því lýkur í nóvember 2009.

 

Nánari upplýsingar er að finna hér að neðan:

 

ENRICH European Networking Resources and Information concerning Cultural
Heritage Evrópskar net- og upplýsingaveitur um menningararfleifð (Desember
2007 – nóvember 2009)

 

Þann 3. desember s.l. var hleypt af stokkunum í Prag samstarfsverkefninu
ENRICH sem styrkt er af eContentPlus áætlun Evrópusambandsins. Heiti
verkefnisins ENRICH er skammstöfun fyrir European Networking Resources and
Information concerning Cultural Heritage, Evrópskar net- og upplýsingaveitur
um menningararfleifð. Markmið þess er að opna greiðan aðgang að stafrænum
myndum af fornum heimildum sem varðveitt eru í ýmsum evrópskum
menningarstofnunum og skapa með því móti sameiginlegt sýndarumhverfi, einkum
til rannsókna á handritum en einnig vögguprenti, fágætum gömlum prentuðum
bókum og öðrum sögulegum skjölum. Verkefnið byggir á þeirri reynslu sem
fengist hefur af verkefninu Manuscriptorium Digital Library
(http://www.manuscriptorium.eu) en þar eru samtengd gögn frá 46 söfnum í
Tékklandi og fleiri löndum.

 

ENRICH verkefnið mun ná til því sem næst 85% stafrænna mynda sem fram til
þessa hafa verið teknar af handritum í evrópskum þjóðbókasöfnum. Á
verktímanum mun bætast við umtalsverður fjöldi gagna frá háskólabókasöfnum
og öðrum stofnunum. Samstarfið mun opna aðgang að rösklega fimm milljónum
stafrænna blaðsíðna.

 

Manuscriptorium er árangur af fimmtán ára samvinnu og þróunarstarfi tveggja
virtra tékkneskra stofnana: AiP Beroun hf. og Þjóðbókasafns Tékklands. Það
er stærsta safn stafrænna handritamynda í Evrópu og veitir aðgang að meira
en einni milljón blaðsíðna; það ræður yfir öruggum stafrænum gagnageymslum,
nýtur ríkisframlaga til stafrænnar myndatöku og viðmót þess er bæði á
tékknesku og ensku. Um 50% notenda Manuscriptorium eru erlendir og sérstök
hliðargrein þess þjónar kennslu og námi í framhaldsskólum. Manuscriptorium
er sprottið upp af Memory of the World verkefni UNESCO og hlaut Þjóðbókasafn
Tékklands af þeim sökum Jikji heimsviðurkenningu UNESCO árið 2005. Sú
þekking og verkkunnátta við framkvæmd stafrænna verkefna sem orðið hefur til
við uppbyggingu Manuscriptorium hefur verið kynnt og samnýtt með mörgum
þjóðum heims.

 

Manuscriptorium byggir á traustu xml-skráningarformi og er kjarni þess hinn
evrópski MASTER staðall fyrir handritaskráningu. Í verkbyrjun er aðgangur að
gögnum sem vistuð eru í gagnageymslum AiP Beroun í Tékklandi en ENRICH
verkefnið mun opna aðgang að enn frekari gögnum í erlendum stafrænum söfnum.
Lýsigögn verða í miðlægum gagnagrunni og verða sótt frá einstökum söfnum með
svokölluðum OAI safnara; þau munu geyma tengingar við stafrænar myndir sem
vistaðar eru í gagnagrunnum hjá þeim stofnunum sem varðveita frumgögnin
sjálf. Komið verður upp nauðsynlegum samskiptaleiðum og þær sérsniðnar að
þörfum hvers þátttakanda í verkefninu. Þróaðar verða sérhæfðar lausnir til
gera þeim þátttakendum, sem ekki hafa yfir að ráða eigin vefviðmóti, kleift
að opna aðgang að sínum gögnum.

 

Markhópar ENRICH verkefnisins eru þeir sem eiga eða varðveita gögn, bóka-,
minja- og skjalasöfn, vísindamenn og háskólanemar, stjórnsýsla og almennir
notendur. Verkefnið mun gera þeim kleift að leita uppi og nálgast heimildir
sem annars væru nánast óaðgengilegar. Auk stafrænna mynda verður unnt að
bjóða aðgang að tölvutækum textum heimilda, ýmsum hjálpargögnum, hljóðskrám
og myndum af stórum sögulegum kortum. Náin samvinna verður á milli
ENRICH-verkefnisins og Evrópubókasafnsins (TEL – The European Library), og
með þeim hætti verður verkefnið hluti af Stafræna evrópska bókasafninu.

 

Hluti ENRICH-verkefnisins er að virkja notendur. Þeir munu fá til afnota
tæki til að safna saman, eftir eigin geðþótta, stafrænum skjölum og nýta sér
gögnin til rannsókna. Hægt verður að nota nokkurn fjölda tungumála við leit
innan Manuscriptorium.

 

Þátttakendur í ENRICH samstarfsverkefninu eru 18 og að auki styður það
fjöldi annarra stofnana sem margar hafa yfir að ráða mikilvægum gagnasöfnum.

 

Þjóðbókasafn Tékklands leiðir verkefnið ásamt tveimur tékkneskum
þátttakendum: AiP Beroun og Crossczech Prague hf. Þjóðbókasafnið og AiP
Beroun leiða einnig einstaka verkþætti verkefnisins ásamt Tölvuþjónustu
Oxford háskóla; Miðstöð rannsókna í boðskiptum og fjölmiðlun við
Flórensháskóla á Ítalíu; Stærðfræði og upplýsingafræðistofnuninni í Vilnius,
Lettlandi; SYSTRAN Paris í Frakklandi og Þjóðbókasafni Spánar.

 

Aðrir þátttakendur sem leggja til tækni og gögn eru: Árnasafn við
Kaupmannahafnarháskóla; Miðstöð Þjóðbókasafnsins í Flórens á Ítalíu;
Þjóðbókasafnið í Vilnius í Lettlandi; Háskólabókasafnið í Wroclaw, Póllandi;
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í Reykjavík;
Tölvunarfræðistofnun mannvísinda við Kölnarháskóla í Þýskalandi;
Biskupsskjalasafnið í St. Pölten (Monasterium- verkefnið), Austurríki;
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, Reykjavík; Tækni- og
hagfræðiháskólinn í Búdapest, Ungverjalandi; og Reikni- og
netsamskiptastofnun í Poznan, Póllandi.

 

Þá hafa eftirtaldir aðilar lýst yfir áhuga sínum til samtarfs við verkefnið:
Þjóðbókasöfnin í Ungverjalandi, Kazakhstan, Moldavíu, Póllandi, Rúmeníu,
Serbíu, Svíþjóð og Tyrklandi; einnig háskólabókasöfnin í Bratislava,
Búkarest og Heidelberg. Listinn yfir samstarfsaðila mun lengjast eftir því
sem líður á verkefnið.

 

Nánari upplýsingar veita:

Örn Hrafnkelsson, forstöðumaður handritadeildar – netfang: ornhra at bok.hi.is.
S: 525 5677

Sigurgeir Steingrímsson, stofustjóri handritasviðs Stofnunar Árna
Magnússonar – netfang: sigurgst at hi.is. S: 525 4017

 

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn er þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla
Íslands, og sem rannsóknarbókasafn ber því að halda uppi upplýsingaþjónustu
á sviði vísinda og fræða, stjórnsýslu og atvinnulífs. Vefsvæði safnins er
www.landsbokasafn.is.

 

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er háskólastofnun með
sjálfstæðan fjárhag og heyrir undir menntamálaráðherra. Hlutverk
stofnunarinnar er að vinna að rannsóknum í íslenskum fræðum og skyldum
fræðigreinum, einkum á sviði íslenskrar tungu og bókmennta; miðla þekkingu á
þeim fræðum og varðveita og efla þau söfn sem stofnuninni eru falin eða hún
á. Vefsvæði stofnunarinnar er www.arnastofnun.is.

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080129/86d08c75/attachment.html


More information about the Gandur mailing list