[Gandur] Að horfa með fingrunum - sýning á verkum blindra og sjónskertra barna í Þjóðminjasafninu

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Wed Feb 20 14:42:28 GMT 2008


Að horfa með fingrunum 
Sýning á verkum blindra og sjónskertra barna
Laugardaginn 23. febrúar klukkan 14 verður sýningin Að horfa með fingrunum 
opnuð á Torginu í Þjóðminjasafni Íslands. Á sýningunni eru þrívíð verk 
blindra og sjónskertra barna sem unnin voru í Myndlistaskólanum í 
Reykjavík veturinn 2007 til 2008, auk teikninga nokkurra nemenda skólans 
af verkum þeirra.
Fjölbreytileg áferð, lykt og hljóð mismunandi efna voru nemendum og 
kennurum hvatning í leit sinni að nýjum og ævintýralegum möguleikum. Ýmis 
áhöld og aðferðir voru nýtt til að gera leiðangurinn áhrifaríkari. 
Afraksturinn er þrívíð verk eða skúlptúrar sem spanna allt frá 
skringilegum skartgripum yfir í leiktæki og landsvæði.
Á landsvæðinu býr slöngutemjari sem stendur á gifspalli. Á hverju landi er 
einnig kennileiti (klettur) unnið úr jarðleir og er húsaskjól 
slöngutemjarans. Landsvæðum var umbreytt eftir þörfum íbúanna - girðingum 
bætt við, flaggstangir reistar og tjarnir myndaðar, einnig þurfti að huga 
að sérþörfum slöngubarnanna. 
Tveir hópar 10-12 ára nemenda við skólann nýttu sér síðan hin ævintýralegu 
landsvæði og þrívíðu verk og unnu teikningar í tússi og blýöntum. 
 
Kennarar voru Brynhildur Þorgeirsdóttir, Gerður Leifsdóttir og Margrét H. 
Blöndal. Sýnendur: Ólafur Einar Ólafsson, Ásdís Ægisdóttir, Sandra 
Gunnarsdóttir, Snæfríður Ingadóttir, Margrét Helga Jónsdóttir, Íva Marín 
Adrichem, Áslaug Ýr Hjartardóttir og Vaka Rún Þórsdóttir
Kennarar teiknihópana voru Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Hildur Bjarnadóttir.
Sýnendur: Jóna Diljá Jóhannsdóttir, Gestur Hallgrímsson, Alma 
Hafsteinsdóttir, Skjöldur Berg Hlynsson, Sigurbjörg Ásta Ólafsdóttir, 
Drífa Atladóttir, Helena Margrét Jónsdóttir, Ragnhildur Inga Magnúsdóttir, 
Helga Sóley Magnúsdóttir og Álfrún Axelsdóttir.
Verkefnið var unnið í samstarfi við foreldradeild Blindrafélagsins og
var stutt af fyrirtækjunum Kólusi og Nóa Síríusi.
Föstudaginn 22. febrúar klukkan 12 verða kennarar á staðnum og spjalla um 
verkefnið.
Sýningin stendur til 9. mars 2008.


Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080220/aacf0cf6/attachment.html


More information about the Gandur mailing list