[Gandur] Íslenskir dýrlingar - Árni Björnsson eys úr viskubrunnum í Þjóðminjasafninu 19. feb. kl. 12:05

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Fri Feb 15 16:15:44 GMT 2008


Íslenskir dýrlingar - Ausið úr viskubrunnum í Þjóðminjasafni Íslands
Sérfræðileiðsögn Árna Björnssonar þjóðháttafræðings þriðjudaginn 19. 
febrúar klukkan 12:05
Þriðjudaginn 19. febrúar klukkan 12:05 verður ,,ausið úr viskubrunnum” í 
Þjóðminjasafni Íslands en þá verður Árni Björnsson þjóðháttafræðingur með 
leiðsögn um grunnsýninguna. Árni mun kynna gesti sérstaklega fyrir myndum 
af íslenskum dýrlingum í safninu. 
Hann veltir fyrir sér ýmsum spurningum um dýrlinga, svo sem hvernig þeir 
voru valdir, hvort samkeppni hafi verið milli þeirra innbyrðis og hvaða 
hlutverki þeir gegndu. Þá er einnig umhugsunarefni hvers vegna íslensku 
dýrlingarnir voru ekki viðurkenndir af páfanum. ,,Voru dýrlingar arftakar 
gamalla skurðgoða?“ spyr Árni Björnsson. ,,Voru þeir tekjulind? Hvernig 
litu dýrlingar út í lifanda lífi og hvaða menjar hafa lifað um þá fram á 
okkar daga?“ Loks mun Árni í leiðsögn sinni fjalla um jarteinasögur og 
hlutverk þeirra.
Trú á dýrlinga skipaði frá upphafi kristni í landinu mikilvægan sess í 
trúarlífi Íslendinga. Í Kristinna laga þætti segir meðal annars að menn 
skuli trúa á Guð einan og ,,á helga menn til árnaðarorðs sér og blóta eigi 
heiðnar vættir.” Fólk mátti trúa á og tilbiðja Guð en ákalla dýrlinga. Ef 
til vill hafa þeir að einhverju leyti tekið við hlutverki goðmagna og 
vætta. Dýrlingarnir nutu mikilla vinsælda meðal almennings og með tímanum 
eignuðust Íslendingar líka sína eigin dýrlinga, Jón Ögmundsson, Þorlák 
helga og Guðmund góða.
Sérfræðileiðsagnir Þjóðminjasafnsins, Ausið úr viskubrunnum, eru haldnar 
annan hvorn þriðjudag í hádeginu. Sérfræðingar bæði innan safns og utan 
taka þá fyrir afmarkaða hluta grunnsýningarinnar og sérsýninga í samræmi 
við sérfræðiþekkingu sína. Leiðsagnirnar eru ætlaðar almenningi og ættu 
allir að hafa gaman af.
Fólk er hvatt til að fjölmenna næstkomandi þriðjudag og hlusta á Árna 
Björnsson tala um íslenska dýrlinga.

Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080215/9c6baf17/attachment.html


More information about the Gandur mailing list