Íslenskir
dýrlingar - Ausið úr
viskubrunnum í Þjóðminjasafni Íslands

Sérfræðileiðsögn Árna Björnssonar
þjóðháttafræðings þriðjudaginn 19. febrúar klukkan 12:05

Þriðjudaginn 19. febrúar klukkan
12:05 verður ,,ausið úr viskubrunnum” í Þjóðminjasafni Íslands en þá verður
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur með leiðsögn um grunnsýninguna. Árni
mun kynna gesti sérstaklega fyrir myndum af íslenskum dýrlingum í safninu.

Hann veltir fyrir sér ýmsum spurningum
um dýrlinga, svo sem hvernig þeir voru valdir, hvort samkeppni hafi verið
milli þeirra innbyrðis og hvaða hlutverki þeir gegndu. Þá er einnig umhugsunarefni
hvers vegna íslensku dýrlingarnir voru ekki viðurkenndir af páfanum. ,,Voru
dýrlingar arftakar gamalla skurðgoða?“ spyr Árni Björnsson. ,,Voru þeir
tekjulind? Hvernig litu dýrlingar út í lifanda lífi og hvaða menjar hafa
lifað um þá fram á okkar daga?“ Loks mun Árni í leiðsögn sinni fjalla
um jarteinasögur og hlutverk þeirra.

Trú á dýrlinga skipaði frá upphafi
kristni í landinu mikilvægan sess í trúarlífi Íslendinga. Í Kristinna laga
þætti segir meðal annars að menn skuli trúa á Guð einan og ,,á helga menn
til árnaðarorðs sér og blóta eigi heiðnar vættir.” Fólk mátti trúa á og
tilbiðja Guð en ákalla dýrlinga. Ef til vill hafa þeir að einhverju leyti
tekið við hlutverki goðmagna og vætta. Dýrlingarnir nutu mikilla vinsælda
meðal almennings og með tímanum eignuðust Íslendingar líka sína eigin dýrlinga,
Jón Ögmundsson, Þorlák helga og Guðmund góða.

Sérfræðileiðsagnir Þjóðminjasafnsins,
Ausið
úr viskubrunnum, eru
haldnar annan hvorn þriðjudag í hádeginu. Sérfræðingar bæði innan safns
og utan taka þá fyrir afmarkaða hluta grunnsýningarinnar og sérsýninga
í samræmi við sérfræðiþekkingu sína. Leiðsagnirnar eru ætlaðar almenningi
og ættu allir að hafa gaman af.

Fólk er hvatt til að fjölmenna næstkomandi
þriðjudag og hlusta á Árna Björnsson tala um íslenska dýrlinga.

Bestu kveðjur / Best regards

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039, s. 530-2222 eða
5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is