[Gandur] Fundur með Pelle Sandstrak og Tourette-samtökunum um Tourette heilkennið - 14. sept. kl. 15 í Þjóðminjasafninu

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Wed Sep 12 12:05:12 GMT 2007


Fundur í Þjóðminjasafni Íslands með Pelle Sandstrak og Tourette-samtökunum 
um Tourette heilkennið

Föstudaginn 14. september klukkan 15 standa Tourette-samtökin á Íslandi 
fyrir fundi um Tourette heilkennið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins með 
norska leikaranum og leikskáldinu Pelle Sandstrak. Hann hefur ferðast víða 
um Norðurlönd og Norður-Ameríku með sýninguna "Mr. Tourette and I" og er 
nú væntanlegur til Íslands. 

Pelle kynnir þær sýningar og fyrirlestra sem hann getur boðið upp á síðar 
í vetur eða næsta vor ef áhugi er fyrir því. Síðan mun Margrét 
Hallgrímsdóttir Þjóðminjavörður ganga með gestum um nýopnaða sýningu 
Þjóðminjasafnsins, Undrabörn, sem fjallar um fötluð börn í þeirra daglega 
umhverfi. 

Tourette-samtökin á Íslandi hafa um nokkurn tíma haft hug á því að fá 
Pelle Sandstrak til Íslands til að halda fyrirlestur og sýningu um 
Tourette heilkennið. Á fundinum í Þjóðminjasafninu mun Pelle ræða um 
reynslu sína af því að halda fyrirlestra og sýningar fyrir ýmiss konar 
fagfólk. Framkvæmdaaðilar sýninganna og fyrirlestranna eru yfirleitt 
kennarasambönd, sérkennarasambönd, þroskaþjálfar, endurmenntunarstofnanir, 
skólar og aðrir slíkir aðilar. Sýningarnar standa yfirleitt yfir í tvo 
til fjóra klukkutíma og tilgangurinn er að auka skilning fagaðila á 
Tourette heilkenninu í því markmiði að koma betur til móts við börn sem 
bera þetta sérstaka heilkenni. 

Við síðara tækifæri, eða nokkru eftir fund þennan, munu svo 
Tourette-samtökin bjóða þeim sem viðstaddir voru fundinn að tjá sig um 
þann möguleika að fá Pelle Sandstrak til að koma til Íslands á næsta ári 
og halda ýmist tveggja eða fjögurra klukkustunda fyrirlestur/sýningu, þar 
sem mun fleiri aðilum á sviði kennslu, sérkennslu og þroskaþjálfunar yrði 
boðin þátttaka.
 
Dagskrá fundarins með Pelle 14. september 2007 í Þjóðminjasafni:
15:00   Pelle Sandstrak heldur stuttan fyrirlestur um reynslu sína af 
sýningum/fyrirlestrum um Tourette heilkennið.
16:00   Þjóðminjavörður gengur með fundargestum um nýopnaða sýningu 
safnsins, Undrabörn.
16:30   Kaffi í boði Tourette-samtakanna og fundarslit.

Enginn kostnaður er í sambandi við þennan fund en þeir sem hafa hug á að 
mæta eru beðnir að láta vita með því að senda tölvupóst á 
tourette at tourette.is eða hringja í 840 2210. Þeir sem fá þennan tölvupóst 
eru velkomnir að bjóða með sér einum eða tveim öðrum á sínum vinnustað, ef 
viðtakandi telur að þeir gætu haft erindi og hug á að mæta á fundinn.
Sjá nánar um Pelle Sandstrak http://pellesandstrak.com/sv/
Sjá nánar um heilkennið og Tourette samtökin á Íslandi á vefslóðinni  
www.tourette.is 


Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20070912/3e517ec9/attachment.html


More information about the Gandur mailing list