[Gandur] Líf og fjör í Grindavík

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Mon Sep 10 13:55:25 GMT 2007


Líf og fjör verður í Grindavík á  réttardaginn 15. september ´07.

Þórkötlustaðaréttir Smalað verður í afrétti Grindvíkinga, föstudaginn  
14. september og dregið í dilka um kl. 14  á laugardegi í  
Þórkötlustaðarétt í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík.„Finna féð“,  
ratleikur fyrir alla fjölskylduna í nágrenni við  
Þórkötlustaðaréttirnar. Leikurinn gengur út á að leita að  
vísbendingum og svara léttum spurningum sem tengjast sauðkindinni.  
Svörin sett í pott og dregið úr réttum svörum. Ullarvinningar að  
sjálfsögðu í verðlaun. Veitingar í Auðsholti og harmonikkuuspil á  
staðnum.

Seljaferð - þjóðháttakyning.

Grindavíkurbær og Saltfisksetrið bjóða upp á þjóðháttakynningu II –  
seljabúskap,  laugardaginn 15. september,  í samvinnu við sjf  
menningarmiðlun og FERLIR.

Mjög lítið hefur verið skrifað um sel og seljabúskap hér á landi og  
enn minna á Reykjanesskaganum, þrátt fyrir að enn megi sjá fjölda  
margar sýnilegar selstöður. Á sama hátt og handritin eru  
áþreifanlegur vottur handbragðsins fyrrum tengja minjar seljanna  
okkur beint við þá gömlu búskaparhætti, sem þar tíðkuðust um aldir.  
Fé var yfirleitt haft í seli frá 6. – 16. viku sumars. Í seljum voru  
m.a. selsmalinn og selsmatseljan og þar voru gerðir ostar, skyr,  
smjör og sýra úr mjólkinni. „Fólkið hélt lífinu í fénu og féð hélt  
lífinu í fólkinu“.

Áætlað er að leggja á stað kl. 11 með rútu frá Saltfisksetrinu í  
Grindavík og aka að Méltunnuklifi við Ísólfsskálaveg. Gengið verður  
eftir slóða inn í Hraunsel sem er undir Núpshlíðarhálsi. Leiðin er  
greiðfær og tekur um 60 mínútur hvora leið. Hraunsel er sel frá  
Hrauni í Grindavík og er með yngstu seljum á Reykjanesskaganum. Í  
selinu má sjá heillegar tóftir selsmannvirkja. Þar verður áð og nesti  
borðað. Leiðsögumenn verða með í för og fræða um seljabúskapinn og  
það sem fyrir augu ber á leiðinni. Áætlað er að koma til baka að  
Saltfisksetrinu um kl.14-15. Allir eru á eigin ábyrgð. Rútugjald er  
1000 kr. Sama dag er mikið um að vera við Þórkötlustaðarétt og gefst  
þátttakendum tækifæri á að verða eftir þar.www.grindavík.is/ 
Saltfisksetur í s. 4201190.

> Með kveðju
> Sigrún Jónsd. Franklín
> verkefnastjóri Grindavíkur
> gsm 6918828
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name:  Seljafer? 15. sept..doc
Type: application/msword
Size: 29184 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20070910/3473e2b2/Seljafer15.sept.-0001.doc
-------------- next part --------------




More information about the Gandur mailing list