[Gandur] Undrabörn - myndverk undrabarnanna sjálfra. Nemendur Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla sýna með Mary Ellen Mark. Stór opnun í Þjóðminjasafninu 9. sept.

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Tue Sep 4 16:42:57 GMT 2007


Undrabörn - myndverk undrabarnanna sjálfra
Nemendur Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla sýna með Mary Ellen Mark

Á sýningunni Undrabörn má líka sjá myndverk eftir undrabörnin sjálf, 
fyrrverandi og núverandi nemendur Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla. Í 
báðum skólum er lögð mikil áhersla á að örva börnin með markvissri 
handavinnu, meðal annars í myndlist. Þau skapa myndverk úr fjölbreytilegum 
efnum og fá allan þann stuðning sem þau þurfa. 

Nemendur vinna verkin sjálf og sköpunarferlið getur tekið langan tíma. Þau 
glíma við ýmis konar fötlun og hafa mismunandi getu. Verk þeirra allra 
bera þó vott um áhuga og natni. 

Frjóir og þolinmóðir kennarar og aðstandendur hafa fundið leiðir, efni og 
aðferðir sem hæfa áhugasviði hvers og eins nemanda. Í verkunum birtast 
ólíkir persónuleikar listamanna sem ekki eru uppteknir af því að vera eins 
og "hinir". Í sköpun sinni eru börnin frjáls og sérstök og fá að njóta sín 
á eigin forsendum.

Ingibjörg Jóhannsdóttir, skólastjóri Myndlistarskólans í Reykjavík, valdi 
verkin á sýninguna.

Sýningin Undrabörn í Þjóðminjasafni Íslands er tileinkuð lífi og starfi 
fatlaðra barna á Íslandi. Hinn virti bandaríski ljósmyndari Mary Ellen 
Mark tók myndir af börnunum sjálfum, kvikmyndagerðarmaðurinn þekkti Martin 
Bell gerði heimildamyndina Alexander um eitt af börnunum í 
Öskjuhlíðarskóla og íslenski ljósmyndarinn Ívar Brynjólfsson myndaði 
sérstaklega umhverfi barnanna.

Sýningin Undrabörn stendur frá 9. september 2007 til 27. janúar 2008.


Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20070904/dbe5ada5/attachment.html


More information about the Gandur mailing list