[Gandur] Undrabörn - myndir Ívars Brynjólfssonar. Mannvirki og umhverfi í formrænni skynjun ljósmyndara. Stór opnun í Þjóðminjasafninu 9. sept.

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Tue Sep 4 16:41:59 GMT 2007


Undrabörn - myndir Ívars Brynjólfssonar
Mannvirki og umhverfi í formrænni skynjun ljósmyndara

Á sýningunni Undrabörn sem opnuð verður í Þjóðminjasafninu 9. september er 
brugðið upp áhugaverðri myndaröð eftir Ívar Brynjólfsson á Veggnum. Myndir 
hans sýna
sérstaklega umhverfi hinna fötluðu barna í Öskjuhlíðarskóla, 
Safamýrarskóla og Lyngási. 

Ívar beitir þarna sams konar nálgun og í fyrri verkefnum sínum. Hann 
reynir að lýsa umhverfinu og því sem hann sér innan skólanna á sem 
skýrastan hátt. Gegnum myndir hans verður starfsemin sem fram fer í rýminu 
sýnileg án þess þó að fólkið sjálft sé sýnt. "Það er oft forvitnilegt að 
skoða ljósmyndir af því sem fólk skilur eftir sig," segir Ívar, "það segir 
ýmislegt um fólkið."

Nálgun Ívars er ólík nálgun Mary Ellen Mark sem horfir á fólkið sjálft. 
Það verður áhugavert að sjá allar þessar myndir saman á sýningunni 
Undrabörn.

Ívar Brynjólfsson hefur getið sér gott orð fyrir ljósmyndir þar sem hann 
beinir sjónum á formrænan hátt að mannvirkjum og umhverfi. Á síðasta ári 
kom út bókin Specimina Commercii með ljósmyndum Ívars, látlaus bók sem 
ekki hlaut mikla athygli. Specimina Commercii er þó full af merkilegum 
myndum af uppstillingum umhverfisins: dekk sem hlaðast á tilviljanakenndan 
hátt í skúlptúra á dekkjaverkstæði, hjól sem standa til sýnis í grind 
verslunar, bækur sem hallast á ýmsan hátt í hillum svo fátt eitt sé nefnt. 
Ljósmyndarinn kemur auga á óvænt og tilviljanakennd mynstur í 
hversdagslegu umhverfi, nær að fanga þau á mynd og gera úr þeim listaverk

Mary Ellen Mark heillaðist mjög af ljósmyndum Ívars Brynjólfssonar og 
eftir að hafa séð Specimina Commercii lagði hún til að hann tæki myndir af 
skólaumhverfi barnanna sem sýndar yrðu sérstaklega með ljósmyndum hennar 
af nemendum og starfsfólki skólanna á sýningunni Undrabörn.

Sýningin stendur frá 9. september 2007 til 27. janúar 2008.


Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20070904/67b9f154/attachment.html


More information about the Gandur mailing list