Undrabörn - myndir Ívars Brynjólfssonar

Mannvirki og umhverfi í formrænni skynjun
ljósmyndara

Á sýningunni Undrabörn sem opnuð verður
í Þjóðminjasafninu 9. september er brugðið upp áhugaverðri myndaröð eftir
Ívar Brynjólfsson á Veggnum. Myndir hans sýna

sérstaklega umhverfi hinna fötluðu
barna í Öskjuhlíðarskóla, Safamýrarskóla og Lyngási.

Ívar beitir þarna sams konar nálgun
og í fyrri verkefnum sínum. Hann reynir að lýsa umhverfinu og því sem hann
sér innan skólanna á sem skýrastan hátt. Gegnum myndir hans verður starfsemin
sem fram fer í rýminu sýnileg án þess þó að fólkið sjálft sé sýnt. "Það
er oft forvitnilegt að skoða ljósmyndir af því sem fólk skilur eftir sig,"
segir Ívar, "það segir ýmislegt um fólkið."

Nálgun Ívars er ólík nálgun Mary
Ellen Mark sem horfir
á fólkið sjálft. Það verður áhugavert að sjá allar þessar myndir saman
á sýningunni Undrabörn.

Ívar Brynjólfsson hefur getið sér
gott orð fyrir ljósmyndir þar sem hann beinir sjónum á formrænan hátt að
mannvirkjum og umhverfi. Á síðasta ári kom út bókin Specimina Commercii
með ljósmyndum Ívars, látlaus bók sem ekki hlaut mikla athygli. Specimina
Commercii er þó full af merkilegum myndum af uppstillingum umhverfisins:
dekk sem hlaðast á tilviljanakenndan hátt í skúlptúra á dekkjaverkstæði,
hjól sem standa til sýnis í grind verslunar, bækur sem hallast á ýmsan
hátt í hillum svo fátt eitt sé nefnt. Ljósmyndarinn kemur auga á óvænt
og tilviljanakennd mynstur í hversdagslegu umhverfi, nær að fanga þau á
mynd og gera úr þeim listaverk

Mary Ellen Mark heillaðist mjög af
ljósmyndum Ívars Brynjólfssonar og eftir að hafa séð Specimina Commercii
lagði hún til að hann tæki myndir af skólaumhverfi barnanna sem sýndar
yrðu sérstaklega með ljósmyndum hennar af nemendum og starfsfólki skólanna
á sýningunni Undrabörn.

Sýningin stendur frá 9. september
2007 til 27. janúar 2008.

Bestu kveðjur / Best regards

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039, s. 530-2222 eða
5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is