[Gandur] Þjóðminjavörður segir gestum Þjóðminjasafnsins frá sýningunni Undrabörn, 2. des. kl. 15

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Fri Nov 30 09:52:33 GMT 2007


Þjóðminjavörður segir gestum frá sýningunni Undrabörn
í Þjóðminjasafninu sunnudaginn 2. desember klukkan 15

Í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands stendur yfir sýningin Undrabörnásamt 
heimildakvikmyndinni Alexande. Myndirnar tók hinn heimsþekkti bandaríski 
ljósmyndari Mary Ellen Mark af fötluðum nemendum í Öskjuhlíðarskóla, 
Safamýrarskóla og Lyngási. Næstkomandi sunnudag, 2. desember klukkan 15, 
verður Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður á staðnum og segir gestum 
frá verkefninu. 

Mary Ellen er  þekkt fyrir myndir þar sem horfst er í augu við 
raunveruleikann og hefur myndað heimilislaus ungmenni í Seattle, starf 
líknarstofnunar móður Teresu í Kolkata og vændishús í Mumbai svo fátt eitt 
sé nefnt. Þegar hún kom til Íslands árið 2006 heillaðist hún mjög af því 
starfi sem unnið er með fötluðum börnum á Íslandi .

Í kjölfarið leitaði Þjóðminjasafn Íslands eftir samstarfi við Mary Ellen 
Mark um að ljósmynda líf fatlaðra barna á Íslandi. Verkefnið hlaut meðal 
annars styrk úr Menningarsjóði Glitnis. Afraksturinn er sýningin Undrabörn 
og samnefnd sýningarbók með ljósmyndunum. Einnig eru til sýnis myndverk 
undrabarnanna sjálfra og ljósmyndir Ívars Brynjólfssonar af umhverfi 
þeirra. Auk þess er heimildamyndin Alexander eftir hinn kunna 
kvikmyndagerðarmann Martin Bell sýnd daglega í fyrirlestrarsal 
Þjóðminjasafnsins frá klukkan 13 til 17. Myndin fjallar um líf Alexanders 
Viðars Pálssonar, nemanda í Öskjuhlíðarskóla. Milli ljósmynda Mary Ellen 
Mark og kvikmyndar Martin Bell er mikilvægt samspil sem dýpkað getur 
upplifunina af sýningunni í heild og gestir sýningarinnar ættu því að 
horfa á kvikmyndina líka. 

Þjóðminjavörður gjörþekkir myndir Mary Ellen Mark og er áhugavert að 
hlusta á hana segja frá sýningunni. Hún mun segja frá verkefninu, sýna 
kvikmyndina Alexander (40 mín) og að lokum ganga með gestum um 
ljósmyndasýninguna. Á sunnudaginn kemur kl. 15-16 gefst einstakt tækifæri 
til að fá leiðsögn hjá þjóðminjaverði og er fólk hvatt til að fjölmenna.



Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20071130/b29eb3b1/attachment.html


More information about the Gandur mailing list