[Gandur] Valkyrjur, hórur og heilagar meyjar
Aðalheiður Guðmundsdóttir
adalh at hi.is
Fri Mar 30 09:16:39 GMT 2007
Fyrirlestur á vegum Félags þjóðfræðinga á Íslandi, miðvikudaginn 4.
apríl kl. 17.15 í Odda, st. 101.
Helga Einarsdóttir þjóðfræðingur kynnir efni MA-ritgerðar sinnar við
háskólann í Cork á Írlandi. Ritgerðin ber titilinn „Healers, Warriors
and Virgin Mothers: the role of Irish supernatural females“.
Valkyrjur, hórur og heilagar meyjar: Ímyndir og hlutverk írskra
yfirnáttúrlegra kvenna
Fyrirlesturinn mun fjalla um breyttar ímyndir írskra yfirnáttúrlegra
kvenna frá heiðnum tíma til nútíma kaþólsks samfélags. Þróun og
breytingar þessara kvenímynda verða ræddar í menningar- og trúarlegu
samhengi með áherslu á breytt kynhlutverk við kristnitöku.
Áframhaldandi mikilvægi og áhrif kvenlegra yfirnáttúrlegra kvenna
verða sérstaklega skoðuð í ljósi vinsælda Maríu meyjar í daglegu lífi
og trúariðkun Íra.
Með kveðju fyrir hönd félagsins,
Aðalheiður Guðmundsdóttir
Stofnun Árna Magnússonar
Árnagarði við Suðurgötu
tel.: (354) 868 0306/ (354) 552 0510
http//:www.hi.is/~adalh
More information about the Gandur
mailing list