[Gandur] Söfnun þjóðhátta um skipasmíðar

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Thu Mar 22 11:00:23 GMT 2007


Söfnun þjóðhátta um skipasmíðar
Þjóðminjasafn Íslands sendir nú út spurningaskrá um skipasmíðar til 
tréskipasmiða og járnskipasmiða um allt land. Skipasmíðar eiga nú mjög 
undir högg að sækja og tréskipasmíði hefur lagst alveg niður, að 
frátalinni dálítilli smábátasmíði. Bygging stálskipa er nálega engin og má 
heita að hún hafi öll flust úr landi. Ekki er því seinna vænna að hefja 
söfnun upplýsinga um þessa merkilegu starfsgrein.
Ágúst Georgsson þjóðháttafræðingur sem stýrir söfnuninni biður þá sem fá 
spurningaskrána í hendur að taka vel á móti henni. 
Með því að svara hjálpa menn Þjóðminjasafninu að varðveita mikilvæga 
þekkingu sem annars er hætt við að færi forgörðum. Ágúst var áður 
forstöðumaður Sjóminjasafns Íslands meðan það var og hét sem deild innan 
Þjóðminjasafnsins og er nú fagstjóri þjóðháttasafns Þjóðminjasafnsins.
Ágúst Georgsson hefur eftirfarandi um söfnunina að segja:
"Skipasmíðar hafa verið stundaðar á Íslandi frá fornu fari. Lengst af var 
eingöngu um smíði opinna báta að ræða en efnið var aðallega rekaviður. Á 
19. öld hófst bygging skipa með þilfari og jókst þá jafnframt 
innflutningur á bátaviði. Handverkfæri voru einu áhöld bátasmiða þar til 
fyrir um 100 árum. Fyrsta eiginlega skipasmíðastöð á Íslandi var 
Slippfélagið í Reykjavík, stofnað 1902 og hófst þá vélvæðing 
iðngreinarinnar. Stærri og minni skipasmíðastöðvar komu í kjölfarið víða 
um land. Smíði stálskipa hófst 1955. Eins og kunnugt er eiga skipasmíðar 
nú mjög undir högg að sækja. Tréskipasmíði hefur alveg lagst niður, að 
undanskilinni dálítilli smábátasmíði, og bygging stálskipa er nálega engin 
og má heita að hún hafi öll flutst úr landi."
Í spurningaskránni er fólk beðið um að segja frá sinni eigin reynslu á 
þessum vettvangi. Ennfremur er stefnt að viðtölum við ákveðinn fjölda 
skipasmiða með bestu hljómgæðum til að varðveita upptökurnar.
Styrkur fékkst til að gera viðtalsþáttinn frá Akki, Styrktar- og 
menningarsjóði vélstjóra og vélfræðinga.
Þjóðminjasafnið hefur frá því um 1960 safnað heimildum um þjóðhætti með 
spurningaskrám Meðal annars hefur verið aflað upplýsinga um lifnaðarhætti 
í þéttbýli, trúarlíf, sveitabúskap og hernámsárin, svo nokkur dæmi séu 
tekin. Í síðustu spurningaskrá sem send var út í október var spurt um 
fiskvinnslu og bar það góðan árangur. Svör heimildarmanna eru varðveitt í 
skjalasafni Þjóðminjasafnins en hafa einnig verið slegin inn í rafrænan 
gagnagrunn og er aðgangur að grunninum takmarkaður.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá þjóðháttasafni Þjóðminjasafns Íslands 
s. 530-2200.

Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20070322/5c21b27c/attachment.html


More information about the Gandur mailing list