[Gandur] Gróska í fornleifarannsóknum á Íslandi. Ráðstefna um fornleifarannsóknir í Þjóðminjasafninu 28. ap. kl. 13-17

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Wed Apr 25 15:46:00 GMT 2007


Gróska í fornleifarannsóknum á Íslandi

Félag íslenskra fornleifafræðinga og Fornleifafræðingafélag Íslands halda 
ráðstefnu um fornleifarannsóknir í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands 
laugardaginn 28. apríl klukkan 13-17 í fyrirlestrasal safnsins. 

Tæpast hefur farið fram hjá nokkrum manni að óvenjumikið hefur verið um 
fornleifauppgrefti um allt land á síðastliðnum árum. Er það helst 
Kristnihátíðarsjóði að þakka en sjóðurinn var stofnaður til að minnast 
þess að 1000 ár voru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á 
Íslandi. Auk þeirra fornleifarannsókna sem hlutu styrki úr 
Kristnihátíðarsjóði hefur verið ráðist í fjölmargar aðrar rannsóknir, 
stórar og smáar, sem eru allrar athygli verðar og ekki síður mikilvægar 
fyrir fræðin. 
 
Á ráðstefnunni verður að þessu sinni einungis fjallað um þær rannsóknir, 
sumar hverjar á óvæntum minjastöðum, aðrar til komnar vegna framkvæmda. 
Sem dæmi má nefna rannsókn á kumli í Hringsdal, á minjum sem hurfu í lónið 
við Kárahnjúkavirkjun og persónurannsókn á   17.aldar kotbónda. Að öðru 
leyti vísast til dagskrárinnar. 
 
Fornleifarannsóknum er ætlað að varpa ljósi á menningararfinn og merka 
sögustaði. Á ráðstefnunni verður fjallað um fornleifarannsóknirnar í 
stuttu máli en henni er öðrum þræði ætlað að efla samstarf þeirra sem að 
fornleifarannsóknum standa. 
 
Kristnihátíðarsjóður hefur lokið störfum en hann hefur verið mikilvæg 
hvatning fyrir fræðigreinina. Ýmsir aðrir aðilar hafa sömuleiðis veitt 
verkefnum á sviði fornleifafræði styrk með ýmsu móti á liðnum árum, s.s. 
Fornleifasjóður, sveitarfélög, byggðasöfn og Rannís auk þess sem 
framkvæmdaraðilar hafa á stundum kostað þau. 
 
Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis. 
 
Dagskrá 

13:00 – 13:15 Tvær rústir á Hálsi við Kárahnjúka. Rannsókn vegna 
virkjanaframkvæmda á hálendinu norðan Vatnajökuls Garðar Guðmundsson.

13:15 – 13:30 Kot í Rangárþingi ytra. Könnunarskurðir í rústir sem hafa 
verið að koma í ljós vegna uppblásturs. Margrét Hrönn Hallmundardóttir
 
13:30 – 13:45 Útskálar í Sveitarfélaginu Garði. Könnunarskurðir vegna 
framkvæmda í þúst norðan við bæjarhól Útskála. Guðrún Alda Gísladóttir
 
13:45 – 14:00 Litlu Núpar í landi Laxamýri í Aðaldal, S-Þingeyjarsýslu. 
Könnunarskurðir í   garðlög,   tóft og möguleg kuml. Howell M. Roberts.
 
14:00 – 14:15 Búðarárbakki í Hrunamannahreppi. Rannsókn á 17. aldar býli.
Kristján Mímisson
 
14:30 – 14:45   Hafnarstræti, tónlistar og ráðstefnuhús í Reykjavík. 
Rannsókn vegna framkvæmda.
Oscar Aldred
 
15:00 – 15:30 kaffi
 
15:30 – 15:45   Hof í Vopnafirði. Rannsókn vegna framkvæmda, á tóft innan 
kirkjugarðs. Steinunn Kristjánsdóttir
 
15:45 – 16:00 Vatnsfjörður við Ísafjarðardjúp. Rannsókn á bæjarstæði. 
Guðrún Alda Gísladóttir
 
16:00 – 16:15 Þórutóftir á Laugafellsöræfum. Tilgangur rannsókna er að 
koma með kenningu um aldur og hlutverk Þórutófta. Sandmúli, Bálsbrekka og 
Helgastaðir á Krókdal. Uppmæling á rústum og könnunarskurðir. Orri 
Vésteinsson
 
16:30 – 17:00 Rannsókn á kumlum og mannvirkjum í Hringsdal við Arnarfjörð.
Adolf Friðriksson.


Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20070425/5c1b949d/attachment.html


More information about the Gandur mailing list