[Gandur] Fyrirlestur í Snorrastofu

runa at thjodminjasafn.is runa at thjodminjasafn.is
Fri Sep 22 14:46:16 GMT 2006


Minningarfyrirlestur um Snorra Sturluson 
 
Snorrastofa verður með hinn árlega minningarfyrirlestur um Snorra 
Sturluson þriðjudaginn 26. september nk. kl. 20.30 í Bókhlöðusal 
stofnunarinnar. Helgi Þorláksson, prófessor í sagnfræði við Háskóla 
Íslands, mun flytja fyrirlestur sem hann nefnir “Þorkell prestur Ólafsson 
í Reykholti og samtíð hans. Um atburði og heimildir 1393-1430”. 
 
Nýi annáll greinir frá árunum 1393-1430 og hefur verið nefndur 'síðasta 
íslenska sagnaritið á miðöldum'.  Er haft fyrir satt að hann hafi verið 
tekinn saman í Skálholti og hefur Jón Egilsson, ritari Árna biskups 
Ólafssonar, verið nefndur sem líklegur höfundur enda segir mikið frá Árna 
í annálnum. Þessi feðrun er dregin í efa og bent á tengsl annálsins við 
Borgarfjörð. Í Reykholti sat presturinn Þorkell Ólafsson sem víða er 
talinn hafa verið bróðir Árna. Þeir Árni voru amk. nánir samverkamenn og 
er kannað hvort annállinn kunni að hafa orðið til að tilstuðlan Þorkels 
eða fyrir áhrif frá honum.
 
Helgi Þorláksson er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og fæst 
einkum við Íslandssögu miðalda en hefur jafnframt samið yfirlitsrit um 
sögu Íslands á 16. og 17. öld. Hann hefur verið í stjórn 
Reykholtsverkefnis frá upphafi þess.
 
Fyrirlestur Helga verður sem fyrr segir fluttur þriðjudagskvöldið 26. 
september nk. kl. 20.30. Að loknum fyrirlestrinum verður boðið upp á 
veitingar sem síðan gefst gestum tækifæri til að ræða efni fyrirlestarins. 

 
Aðgangseyrir er 500 kr. og eru allir velkomnir!
 
 
Bergur Þorgeirsson
 
forstöðumaður
Snorrastofu í Reykholti
320 Reykholti
 
Sími: 433 8000
Farsími: 893 1492
Heimasími: 435 1525
Heimasíða: www.snorrastofa.is
 
 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20060922/bae303cc/attachment.html


More information about the Gandur mailing list