[Gandur] Ljósmyndir og lifandi leiðsagnir í Þjóðminjasafninu um helgina. Komið og upplifið menningarævintýrið!

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Thu Sep 21 14:47:19 GMT 2006


Forngrískar menningarminjar í túlkun Nelly’s
Þegar gengið er inn á Torgið í Þjóðminjasafninu blasir við fallegur 
stemmingsheimur gríska ljósmyndarans Nelly’s. Dulúðugar svarthvítar myndir 
af forngrískum menningarminjum, fornleifum og öðrum mótífum gleðja augu 
gesta enda Nelly eða Elli Seraidari-Souyoultzoglou (1899-1998) eins og hún 
fullu nafni hét í miklum hávegum höfð á Grikklandi. Verk hennar eru víða 
sýnd og koma myndirnar í Þjóðminjasafninu frá Benaki safninu í Aþenu. 
Nelly hafði djúpstæðan áhuga á forngrískri menningu og hin helga 
Akrópólishæð veitti henni stöðugan innblástur. Í ljósmyndum sínum náði hún 
ekki aðeins að fanga ytra útlit minja og menningarstaða heldur einnig 
sjálfa sál þeirra og geometríu. Myndir hennar sýna forn minnismerki eins 
og Parþenon frá óvæntu sjónarhorni og ljá áhorfendum nýja upplifun eða 
skynjun. Sýning stendur til 6. okt. nk. 
Upplýsingar í s. 5510700 eða 8936628
Sýning á verkum Nelly’ var áður á Hótel Nordica og má sjá myndir á 
vefslóðinni: 
http://www.123.is/album/display.aspx?fn=MOTIVMEDIA&aid=-47904791 

Ísland í túlkun Mark Watson og Alfred Ehrhardt árið 1938
í Myndasal Þjóðminjsafns Íslands -síðasta sýningarhelgi 23.-24. sept.
Jafnframt eru síðustu forvöð að sjá hina merku sýningu á myndum 
Þjóðverjans Alfreds Ehrhardt og Englendingsins Marks Watson í Myndasal 
Þjóðminjasafnins en þeirri sýningu lýkur um helgina. Sýningin Ísland er 
helguð ólíkri sýn þessara tveggja Evrópubúa á landið. Sumarið 1938 
ferðuðust Alfred Ehrhardt og Mark Watson um Ísland. Báðir komu til að sjá 
og upplifa náttúru landsins en tilgangurinn var ólíkur. Myndir þeirra 
Ehrhardts og Watsons eru vitnisburður um hvað ljósmyndin getur verið 
persónulegt og margrætt tjáningarform. Sýn og túlkun tveggja einstaklinga 
á sama tíma þarf ekki að eiga neitt sameiginlegt nema miðilinn. Ísland 
árið 1938 lifir á ólíkan hátt í myndum þessara tveggja ljósmyndara. 

Gengið gegnum aldirnar
Auk ljósmyndasýninganna tveggja er að venju boðið upp á leiðsagnir um 
helgina. Margfróðir sýningarverðir leiða gesti um grunnsýninguna og leiða 
kannski gesti í allan sannleikann...!
Leiðsögn er á ensku kl. 14 alla laugardaga en á íslensku kl. 14 alla 
sunnudaga.

Það er nóg um vera í Þjóðminjasafni Íslands svo nú er bara drífa sig! 
Opið alla daga nema mánudaga 11-17.

Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
s. 530-2222, fars. 824-2039 eða 691-3214
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20060921/ace9c481/attachment-0001.html


More information about the Gandur mailing list