[Gandur] Kviksögukvöld - Primary eftir Robert Drew (PC-tölvutækt)

ReykjavíkurAkademían ra at akademia.is
Thu Oct 26 10:22:34 GMT 2006


Kviksaga - heimildamyndamiðstöð ReykjavíkurAkademíunnar kynnir:

Í kvöld, fimmtudaginn 26. október kl. 20.00, stendur Kviksaga að sýningu
heimildamyndarinnar "Primary" eftir Robert Drew í húsnæði
ReykjavíkurAkademíunnar, 4. hæð.

Drew er meðal frumkvöðla  cinéma vérité stefnunnar í Bandaríkjunum ásamt Richard Leacock og D A Pennebaker sem komu einnig að gerð þessarar myndar. Í 
henni fylgjumst við með John F. Kennedy og Hubert Humphrey á kosningaferðalagi vegna forkosninga demókrataflokksins 1960.  Hún þykir byltingakennd fyrir það leyti að Kennedy er fylgt eftir nótt sem nýtan dag með nýstárlegri upptökutækni. Með lipurri myndatöku reyndu Drew og félagar að forðast stýrða frásögn en færa áhorfendur þess í stað inn í atburðarásina sem er aðall cinéma vérité stefnunnar eða direct cinema. Myndin er meðal þeirra fyrstu sem gerð var innan þessarar kvikmyndastefnu sem leitaðist við að ná 'sannleikanum' á mynd. Hún gefur einstæða sýn á þjóðlíf þessa tíma í Bandaríkjunum og fyrstu skrefin í örlagaríkum stjórnmálaferli Kennedy.  Myndin er með ensku tali.

Kristinn Schram, þjóðfræðingur, fylgir myndinni úr hlaði.
Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis.


Kviksaga - Heimildamyndamiðstöð
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121, JL-húsinu, 4. hæð
107 Reykjavík

www.akademia.is
kviksaga at akademia.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20061026/37925a96/attachment-0001.html


More information about the Gandur mailing list